Langtímavegabréfsáritun má veita þegar:
- einstaklingur sem er í löglegri dvöl hér á landi óskar eftir dvöl umfram 90 daga,
- tilgangur dvalar er ekki af ástæðu sem tilgreind er almennt í dvalarleyfisflokkum
- og ekki er ætlun viðkomandi að setjast að á landinu.
Meðal annars er heimilt að gefa út langtímavegabréfsáritun í eftirfarandi tilvikum (sbr. 5. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017):
- Til aðstandenda (sbr. 1. mgr. 69. gr. laga um útlendinga) sem hyggjast koma í lengri heimsókn hingað til lands. Heimilt er að víkja frá aldursskilyrði foreldra umsækjanda við útgáfu langtímavegabréfsáritunar.
- Til vitna eða aðila að dómsmáli sem þurfa að dveljast hér vegna reksturs málsins.
- Til útlendinga sem hingað koma í öðrum lögmætum tilgangi, svo sem listamanna, vísindamanna eða íþróttamanna, enda kalli dvöl þeirra ekki á útgáfu dvalar- og/eða atvinnuleyfis.
Athugið að sækja um langtímavegabréfsáritun að minnsta kosti 14 dögum áður en gildandi áritun rennur út eða áður en 90 dagar eru liðnir frá því að umsækjandi kom inn á Schengen svæðið.
Réttindi sem fylgja langtímavegabréfsáritun
- Heimild til dvalar í allt að 90 daga fram yfir þann tíma sem viðkomandi mætti að öllu jöfnu dvelja á landinu sem ferðamaður, hvort sem hann er áritunarskyldur eða ekki.
- Langtímavegabréfsáritun er einungis heimilt að gefa út einu sinni á hverju 12 mánaða tímabili.
- Umsækjandi fær ekki kennitölu og má ekki stunda atvinnu.
Umsókn um langtímavegabréfsáritun
Gögn sem þarf að leggja fram
Umsækjandi um langtímavegabréfsáritun skal leggja fram öll þau gögn sem Útlendingastofnun gerir kröfu um og teljast nauðsynleg við vinnslu umsóknar.
- Greiðslukvittun (ef greitt hefur verið fyrir umsóknina í banka). Koma þarf skýrt fram fyrir hvern er verið að greiða. Skráið nafn umsækjanda, fæðingardag og fæðingarár í tilvísun.
- Umsókn um langtímavegabréfsáritun.
- Passamynd (35mm x 45mm) ekki eldri en 6 mánaða.
- Ljósrit vegabréfs. Gildistími skal vera minnst 90 dagar umfram gildistíma áritunar. Ljósrit þarf að vera af persónusíðu, síðu með undirskrift umsækjanda, áritunum sem og komu- og brottfararstimplum inn á og út af Schengen-svæðinu á síðastliðnu ári.
- Tilgangur dvalar. Gögn sem staðfesta tilgang dvalar hér á landi, t.d. boðsbréf frá gestgjafa, staðfesting á dvöl í listasetri, skjöl frá dómstólum vegna málsmeðferðar, eða greinargerð þar sem tilgangi dvalar hér á landi er lýst.
- Framfærsla. Gögn sem sanna að framfærsla umsækjanda sé trygg þann tíma sem dvalið er hér á landi.
- Sjúkra- og slysatrygging fyrir þann tíma sem umsækjandi dvelur hér á landi (ferðamannatrygging).
- Heimferð. Farmiði fyrir heimferð eða sönnun þess að umsækjandi hafi fjárráð til að greiða heimför þegar dvöl hér á landi lýkur.
- Sakavottorð. Ef ástæða þykir til, getur Útlendingastofnun farið fram á að umsækjandi skili inn sakavottorði.
Gögn sem er heimilt að leggja fram
- Umboð í frumriti vottað af tveimur vottum. Umboð þarf ekki að berast nema umsækjandi vilji að einhver annar en hann sjálfur fái upplýsingar um vinnslu umsóknarinnar hjá Útlendingastofnun.
Það er á ábyrgð umsækjanda að leggja fram nauðsynleg fylgigögn umsóknar. Ef fullnægjandi gögn berast ekki til Útlendingastofnunar með umsókninni getur það leitt til þess að afgreiðsla umsóknar tefjist eða að umsókninni verði synjað. Útlendingastofnun getur óskað eftir viðbótargögnum þegar sérstakar ástæður mæla með því.