Þann 1. apríl 2020 taka gildi breytingar á lögum um íslenskan ríkisborgararétt nr. 100/1952.
Breytingarnar ná meðal annars til ákvæða laganna um biðtíma vegna sektarrefsinga, sem telja má sanngjarnt vegna breyttra reglna um fjárhæðir sekta vegna umferðarlagabrota, og biðtíma vegna fangelsisrefsinga. Þá er skýrleiki nokkurra ákvæða sem mæla fyrir um skilyrði fyrir veitingu íslensks ríkisborgararéttar aukinn, í þeim tilgangi að bæta skilvirkni og gagnsæi laganna.
Til að koma til móts við fyrrum íslenska ríkisborgara, sem misstu sitt íslenska ríkisfang við það að öðlast annað ríkisfang, er ákvæði um heimild til endurveitingar íslensks ríkisborgararéttar tekið upp í lögin sem varanlegt ákvæði.
Loks er búsetuskilyrði einstaklinga sem óskað geta eftir íslensku ríkisfangi á grundvelli norræns samnings um ríkisborgararétt stytt úr sjö árum í þrjú og búsetuskilyrði fyrir maka íslenskra ríkisborgara lengt úr þremur árum í fjögur.