• Íslenska
  • English (UK)

Sidebar

  • Heim
  • Um Útlendingastofnun
    • Útlendingastofnun
    • Fréttir
    • Greinar
    • Tölfræði
      • Tölfræði leyfasviðs
      • Tölfræði verndarsviðs
    • Ársskýrslur
    • Stefnur Útlendingastofnunar
      • Stefna Útlendingastofnunar til ársins 2023
      • Launastefna
      • Jafnlaunastefna
      • Tungumálastefna
      • Persónuverndarstefna
    • Skipurit
    • Gjaldskrá
    • Eyðublöð
    • Afgreiðslutími
    • Samstarfssamningar
    • Lög og reglugerðir
    • Algengar spurningar
      • Dvalarleyfi
      • Alþjóðleg vernd
      • Vegabréfsáritanir
      • Íslenskur ríkisborgararéttur
      • Túlkanir og þýðingar
      • Upplýsingar fyrir ríkisborgara Úkraínu
    • Hafa samband
  • Eyðublöð
  • Afgreiðslutími
  • Tímabókanir
  • Hafa samband
  • Algengar spurningar
  • Tölfræði
    • Tölfræði leyfasviðs
    • Tölfræði verndarsviðs
  1. Heim
  2. Um Útlendingastofnun
  3. Fréttir
  4. Ferðatakmarkanir

Ferðatakmarkanir

Details
23 Mars 2020

Vegna útbreiðslu Covid-19 hafa íslensk stjórnvöld innleitt ferðatakmarkanir á ytri landamærum Schengen svæðisins í samræmi við tilmæli leiðtogaráðs Evrópusambandsins. Frá og með 20. mars 2020 er öllum erlendum ríkisborgurum – nema ríkisborgurum ESB/EES, EFTA og Bretlands – óheimilt að koma til Íslands. Ferðatakmarkanirnar gilda til 1. júlí 2020.

Til hverra ná ferðatakmarkanirnar?

Ferðatakmarkanirnar gilda um alla erlenda ríkisborgara, nema ríkisborgara ESB/EES, EFTA og Bretlands, óháð því hvort þeir þurfi áritun til að ferðast til Schengen svæðisins eða ekki.

Til hverra ná ferðatakmarkanirnar ekki?

Ferðatakmarkanir gilda ekki um:

  • ESB-borgara
  • Ríkisborgara EFTA ríkjanna
  • Breska ríkisborgara
  • Einstaklinga með gilt dvalarleyfi á Íslandi eða í einhverju aðildarríkja Schengen samstarfsins
  • Aðstandendur Íslendinga eða annarra ESB/EFTA-borgara, þ.e. maka, sambúðarmaka, afkomendur (yngri en 21 árs) og ættingja í beinan legg af eldri kynslóð á framfæri þeirra.


Undanþágur

Ferðatakmarkanirnar eiga ekki við um þá sem koma til landsins í brýnum erindagjörðum, þ. á m. farþega í gegnumferð, starfsfólk á sviði heilbrigðisþjónustu og öldrunarþjónustu, starfsfólk sem sinnir flutningum á vöru og þjónustu, einstaklinga sem hafa þörf á alþjóðlegri vernd, einstaklinga sem þurfa að ferðast vegna brýnna aðstæðna í fjölskyldu sinni, diplómata, starfsmenn alþjóðastofnana, meðlimi herliðs og starfsmenn sem sinna mannúðaraðstoð, námsmenn og einstaklinga sem þurfa nauðsynlega að ferðast vegna starfa sem teljast efnahagslega mikilvæg og störf þeirra geta ekki verið framkvæmd síðar eða erlendis.

Erlendum ríkisborgurum sem ferðatakmarkanirnar ná til, sem þurfa að ferðast til aðildarríkis Schengen samstarfsins í gegnum Ísland í brýnum erindagjörðum, er ráðlagt að hafa samband við yfirvöld í því ríki sem þeir þurfa að ferðast til til að fá skriflega staðfestingu á heimild til komu til viðkomandi ríkis. Án slíkrar staðfestingar er ekki hægt að heimila erlendum ríkisborgurum, sem ferðatakmarkanirnar ná til, að koma inn á Schengen svæðið á Íslandi.

Ef Ísland er áfangastaðurinn, er mælt með því að erlendir ríkisborgarar sem ferðatakmarkanirnar ná til hafi samband við næsta sendiráð Íslands eða ræðismannaþjónustu utanríkisráðuneytisins (í síma +354 545 0112 eða This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.) til að fá upplýsingar um hvernig hægt sé að fá undanþágu frá ferðatakmörkununum.

Vinsamlegast athugið að ef ætlunin er að ferðast til Íslands með millilendingu í öðru ríki, er mikilvægt að kynna sér vel hvort einhverjar ferðatakmarkanir hafi verið innleiddar í viðkomandi ríki sem gætu haft áhrif á ferð þína til Íslands.

  • Útlendingastofnun
  • Fréttir
  • Greinar
  • Tölfræði
    • Tölfræði leyfasviðs
    • Tölfræði verndarsviðs
  • Ársskýrslur
  • Stefnur Útlendingastofnunar
    • Stefna Útlendingastofnunar til ársins 2023
    • Launastefna
    • Jafnlaunastefna
    • Tungumálastefna
    • Persónuverndarstefna
  • Skipurit
  • Gjaldskrá
  • Eyðublöð
  • Afgreiðslutími
  • Samstarfssamningar
  • Lög og reglugerðir
  • Algengar spurningar
    • Dvalarleyfi
    • Alþjóðleg vernd
    • Vegabréfsáritanir
    • Íslenskur ríkisborgararéttur
    • Túlkanir og þýðingar
    • Upplýsingar fyrir ríkisborgara Úkraínu
  • Hafa samband

Tenglar

  • Dómsmálaráðuneytið
  • Kærunefnd útlendingamála
  • New in Iceland
  • Fjölmenningarsetur
  • Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna
  • Mannréttindaskrifstofa
  • Vinnumálastofnun
  • Þjóðskrá
  • Persónuvernd

Upplýsingar

  • Útlendingastofnun
  • Dvalarleyfi
  • Áritanir
  • Ríkisborgararéttur
  • Alþjóðleg vernd
  • Persónuverndarstefna

OPNUNARTÍMI

Mánudaga til föstudaga 9 - 14

Símaþjónusta:
Mánudaga til fimmtudaga 9 - 14
Föstudaga 9 - 12

444 0900

This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

Staðsetning

Útlendingastofnun | Dalvegi 18 | 201 Kópavogi | 444 0900 | utl@utl.is

Kt. 670269-6399 | Rkn. 0515-26-410424 

Jafnlaunavottun adalmerki 2020 2023 f ljosan grunn hrmonitor 2021