• Íslenska
  • English (UK)

Sidebar

  • Heim
  • Um Útlendingastofnun
    • Útlendingastofnun
    • Fréttir
    • Greinar
    • Tölfræði
      • Tölfræði leyfasviðs
      • Tölfræði verndarsviðs
    • Ársskýrslur
    • Stefnur Útlendingastofnunar
      • Stefna Útlendingastofnunar til ársins 2023
      • Launastefna
      • Jafnlaunastefna
    • Skipurit
    • Gjaldskrá
    • Eyðublöð
    • Afgreiðslutími
    • Samstarfssamningar
    • Lög og reglugerðir
    • Algengar spurningar
    • Hafa samband
    • COVID-19
  • Eyðublöð
  • Afgreiðslutími
  • Tímabókanir
  • Algengar spurningar
  • Lög og reglugerðir
  • Tölfræði
    • Tölfræði leyfasviðs
    • Tölfræði verndarsviðs
  1. Heim
  2. Lögmætur tilgangur

Dvalarleyfi á grundvelli lögmæts og sérstaks tilgangs

Dvalarleyfi á grundvelli lögmæts og sérstaks tilgangs er fyrir einstakling 18 ára eða eldri sem uppfyllir ekki skilyrði annarra dvalarleyfa. Leyfið er veitt í undantekningartilfellum og aðeins þegar sérstakar aðstæður eru fyrir hendi.

Dvalarleyfið er veitt á grundvelli 79. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Þú gætir átt rétt á dvalarleyfi á grundvelli lögmæts og sérstaks tilgangs ef öll eftirfarandi skilyrði eru uppfyllt, ásamt fleirum

  • Tilgangur dvalar er lögmætur og sérstakur,
  • þú ert eldri en 18 ára,
  • getur sýnt fram á að þú getir framfleytt þér á dvalartíma,
  • ert sjúkratryggð(ur) hjá íslensku tryggingafélagi (undir liðnum vátryggingafélög) eða erlendu tryggingafélagi sem hefur starfsleyfi á Íslandi (undir liðnum erlend vátryggingafélög),
  • hefur ekki afplánað refsingu erlendis á síðustu 5 árum eða verið dæmd(ur) til lengri refsingar en sem samsvarar 3 mánaða fangelsi samkvæmt íslenskum lögum, og
  • átt vegabréf þar sem gildistími er minnst 90 dagar umfram áætlaðan gildistíma dvalarleyfis.

Þú mátt ekki

  • Koma til landsins áður en dvalarleyfið hefur verið veitt, nema þú þurfir ekki vegabréfsáritun til landsins (en þá má aðeins dveljast 90 daga samfellt á Schengen-svæðinu á sl. 180 daga tímabili),
  • fá fjölskyldu þína með þér eða til þín,
  • vinna án atvinnuleyfis,
  • vinna fyrir annan atvinnurekanda en þann sem atvinnuleyfið var veitt til, og
  • vera lengur frá landinu en 90 daga á hverju 12 mánaða tímabili á meðan leyfið er í gildi, annars getur dvalarleyfið verið fellt niður eða afturkallað.

Umsókn um dvalarleyfi (og atvinnuleyfi, ef við á) og önnur fylgigögn skulu lögð fram hjá Útlendingastofnun eða sýslumönnum utan höfuðborgarsvæðisins.

Umsækjandi sem ekki er áritunarskyldur má vera staddur á landinu þegar umsókn er lögð fram og þegar hún er til vinnslu, svo lengi sem samfelld dvöl á Schengen-svæðinu fer ekki yfir 90 daga á sl. 180 daga tímabili. Umsækjandi sem er áritunarskyldur má ekki vera staddur á landinu þegar umsókn er lögð fram. Slíkri umsókn verður synjað. 

Ef umsækjandi uppfyllir ekki þessi skilyrði og þau skilyrði sem fjallað er um neðar verður dvalarleyfi synjað og umsækjandi þarf að yfirgefa landið. Yfirgefi umsækjandi ekki landið getur það leitt til brottvísunar og endurkomubanns. Endurkomubann felur í sér bann við endurkomu á Schengen-svæðið um ákveðinn tíma eða að lágmarki 2 ár.

Dvalarleyfi á grundvelli lögmæts og sérstaks tilgangs eru að hámarki veitt til 1 árs í senn og getur leyfið ekki verið grundvöllur ótímabundins dvalarleyfis. Miðað er við að um tímabundnar aðstæður sé að ræða og því er ekki gert ráð fyrir að dvalarleyfi á þessum grunni verði endurnýjað nema í undantekningartilvikum.

Það er á ábyrgð umsækjanda að sækja um endurnýjun dvalarleyfis a.m.k. 4 vikum áður en gildistími leyfis rennur út. Sé það gert er umsækjanda heimilt að dvelja á Íslandi á meðan umsókn um endurnýjun er til vinnslu hjá Útlendingastofnun. Sé ekki sótt um endurnýjun dvalarleyfis áður en gildistími rennur út verður farið með umsókn eins og um fyrsta leyfi sé að ræða en ekki endurnýjun. Umsókn sem berst eftir að gildistími eldra leyfis er útrunninn verður synjað ef umsækjandi hefur ekki heimild til að dvelja á landinu meðan umsókn er til vinnslu. Sjá nánar um feril umsókna og endurnýjun dvalarleyfis. 

 

Nánar um dvalarleyfi vegna lögmæts tilgangs

Skilyrði fyrir veitingu leyfis

Réttindi sem fylgja leyfinu

Umsókn um fyrsta leyfi

Endurnýjun

 

Skilyrði fyrir veitingu leyfis

Í reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga eru nánari upplýsingar um í hvaða tilvikum dvalarleyfi á grundvelli lögmæts og sérstaks tilgangs eru veitt. Ákvæðið felur í sér heimild til veitingar dvalarleyfis en ekki skyldu til leyfisveitingar undir neinum kringumstæðum. Dvalarleyfi er veitt eða því synjað á grundvelli heildarmats á aðstæðum viðkomandi og gögnum málsins.

Umsækjandi þarf bæði að uppfylla grunnskilyrði sem eru fyrir veitingu dvalarleyfisins og það skilyrði að tilgangur dvalar umsækjanda sé bæði lögmætur og sérstakur.

Eftirfarandi tilvik koma til greina sem grundvöllur dvalarleyfis:

  • Útlendingur sem slasast eða veikist hér á landi og þarf að framlengja dvöl sína þess vegna, ef langtímavegabréfsáritun samkvæmt 21. gr. útlendingalaga á ekki við um aðstæður hans.
  • Útlendingur sem er aðstandandi þess sem slasast hér á landi eða veikist. Aðstandendur teljast maki, sambúðarmaki og foreldrar
  • Útlendingur sem á von á barni sem verður íslenskur ríkisborgari. Leggja þarf fram staðfestingu á þungun og yfirlýsingu frá föður, ef móðir er útlendingur.
  • Útlendingur sem er aðili dómsmáls fyrir íslenskum dómstólum, sé dvöl hans hér á landi nauðsynleg vegna málsins.

Ekki er um tæmandi upptalningu að ræða. Útlendingastofnun metur hvort önnur tilvik teljist bæði lögmæt og sérstök.

Til að Útlendingastofnun geti metið hvort veita skuli dvalarleyfi á þessum grunni þarf að berast greinargerð frá umsækjanda sem lýsir tilgangi dvalar hér á landi og önnur gögn sem styðja greinargerðina (t.d. staðfesting frá heilbrigðisstofnun eða öðrum aðilum hér á landi sem staðfesta tilgang dvalar).

Réttindi sem fylgja leyfinu

Réttindi sem fylgja dvalarleyfinu eru eftirfarandi:

  • Umsækjandi sem er áritunarskyldur má ekki vera staddur á landinu þegar sótt er um dvalarleyfið og það er til vinnslu. Slíkri umsókn verður synjað. Umsækjandi sem ekki er áritunarskyldur má vera staddur á landinu þegar umsókn er lögð fram og á meðan hún er til vinnslu, svo lengi sem samfelld dvöl á Schengen-svæðinu fer ekki yfir 90 daga á sl. 180 daga tímabil. Fari dvöl fram yfir þann tíma stöðvast vinnsla umsóknar þar til umsækjandi hefur farið af landi brott og lagt fram brottfararspjald því til sönnunar.
  • Umsækjandi þarf að sækja sérstaklega um atvinnuleyfi ætli viðkomandi að stunda vinnu hér á landi. Umsækjanda er ekki heimilt að byrja að vinna fyrr en dvalar- og atvinnuleyfi hefur verið veitt.
  • Í undantekningartilfellum má endurnýja dvalarleyfið haldist aðstæður umsækjanda óbreyttar.
  • Heimilt er að sækja um atvinnuleyfi.
  • Dvalarleyfið veitir ekki rétt til fjölskyldusameiningar.
  • Dvalarleyfið getur ekki verið grundvöllur ótímabundins dvalarleyfis.

Umsókn um fyrsta leyfi

Umsækjandi sem er áritunarskyldur má ekki vera staddur á landinu þegar sótt er um dvalarleyfið og það er til vinnslu. Slíkri umsókn verður synjað. Umsækjandi sem ekki er áritunarskyldur má vera staddur á landinu þegar umsókn er lögð fram og á meðan hún er til vinnslu, svo lengi sem samfelld dvöl á Schengen-svæðinu fer ekki yfir 90 daga á sl. 180 daga tímabil. Fari dvöl fram yfir þann tíma stöðvast vinnsla umsóknar þar til umsækjandi hefur farið af landi brott og lagt fram brottfararspjald því til sönnunar.

Með umsókn skulu fylgja öll þau gögn sem Útlendingastofnun gerir kröfu um til staðfestingar á því að skilyrði dvalarleyfis séu uppfyllt. 

Gögn sem þarf að leggja fram:

  1. Greiðslukvittun (ef greitt hefur verið fyrir umsóknina í banka). Koma þarf skýrt fram fyrir hvern er verið að greiða. Skráið nafn umsækjanda, fæðingardag og fæðingarár í tilvísun.
  2. Umsókn um dvalarleyfi. (Vinsamlegast hlaðið niður og vistið á tölvu áður en fyllt er út). Í frumriti, vel útfyllt og undirrituð af umsækjanda. Mikilvægt er að umsækjandi greini frá dvalarstað sínum hér á landi. Liggi heimilisfang ekki fyrir þegar umsókn er lögð fram skal umsækjandi leggja fram tilkynningu um dvalarstað innan 2 vikna frá því að umsækjandi kemur til landsins (t.d. við myndatöku).
  3. Passamynd (35mm x 45mm).
  4. Ljósrit vegabréfs. Gildistími skal vera minnst 90 dagar umfram gildistíma dvalarleyfis. Ljósrit þarf að vera af persónusíðu og síðu með undirskrift umsækjanda.
  5. Greinargerð og gögn til staðfestingar á því að umsækjandi þurfi á dvalarleyfi á grundvelli lögmæts og sérstaks tilgangs að halda.
  6. Staðfest frumrit erlends sakavottorðs. Sakavottorð má ekki vera eldra en 6 mánaða. Leggja þarf fram sakavottorð frá öllum þeim löndum þar sem umsækjandi hefur búið síðustu 5 ár. Sakavottorð skal gefið út af æðsta yfirvaldi lands sem heimilt er að gefa út slíkt vottorð. Athugið að krafist er vottunar sakavottorðs, þ.e. apostille eða tvöfaldrar keðjustimplunar.
  7. Staðfest afrit eða frumrit þýðingar löggilts skjalaþýðanda á sakavottorði. Á aðeins við ef erlend vottorð eru á öðru tungumáli en ensku eða Norðurlandamáli. Athugið að krafist er vottunar á þýðinguna sé hún unnin af þýðanda sem ekki hefur fengið löggildingu á Íslandi, þ.e. apostille eða tvöfaldrar keðjustimplunar.
  8. Sjúkrakostnaðartrygging.Umsækjandi þarf að leggja fram staðfestingu tryggingar frá íslensku tryggingafélagi (undir liðnum vátryggingafélög) eða erlendu tryggingafélagi sem hefur starfsleyfi á Íslandi (undir liðnum erlend vátryggingafélög). Tryggingin skal gilda í 6 mánuði frá skráningu umsækjanda í þjóðskrá og vera að lágmarki 2.000.000 kr. Skráning í þjóðskrá miðast að öllu jöfnu við þá dagsetningu sem umsækjandi kemur til myndatöku hjá Útlendingastofnun eða sýslumanni vegna útgáfu dvalarskírteinis, hafi hann dvalið hér á landi samfellt frá því að myndatakan fór fram.
  9. Framfærslugögn sem staðfesta trygga framfærslu á dvalartíma.

Gögn sem er heimilt að leggja fram:

  1. Umboð í frumriti vottað af tveimur vottum. Athugið að umboð þarf ekki að berast nema umsækjandi vilji að einhver annar en hann sjálfur fái upplýsingar um vinnslu umsóknarinnar hjá Útlendingastofnun.
  2. Umsókn um atvinnuleyfi vegna sérstakra aðstæðna. Í frumriti, undirrituð bæði af umsækjanda og atvinnurekanda og staðfest af viðeigandi stéttarfélagi.
  3. Ráðningarsamningur.Í frumriti og undirritaður bæði af umsækjanda og atvinnurekanda. Launakjör umsækjanda þurfa að koma fram og ná viðmiði um lágmarksframfærslu. 

Það er á ábyrgð umsækjanda að leggja fram nauðsynleg fylgigögn umsóknar. Ef fullnægjandi gögn berast ekki til Útlendingastofnunar með umsókninni getur það leitt til þess að afgreiðsla umsóknar tefjist eða að umsókninni verði synjað. Útlendingastofnun getur óskað eftir viðbótargögnum þegar sérstakar ástæður mæla með því.

Uppfylli umsækjandi öll skilyrði dvalarleyfis verður dvalarleyfið veitt og umsækjanda í framhaldinu send tilkynning um veitinguna. Dvalarleyfið verður þó ekki útgefið fyrr en umsækjandi hefur mætt í myndatöku til Útlendingastofnunar eða sýslumanna utan höfuðborgarsvæðisins, tilkynnt um dvalarstað til Útlendingastofnunar og gengist undir læknisskoðun. Miðað er við að umsækjandi mæti til myndatöku innan við viku frá komu til landsins, og leggi fram tilkynningu um dvalarstað (t.d. við myndatöku) og gangist undir læknisskoðun innan tveggja vikna frá komu til landsins. Útlendingastofnun synjar um útgáfu dvalarleyfis uppfylli umsækjandi ekki ofantalin skilyrði. Það getur leitt til ólögmætrar dvalar og brottvísunar.



Endurnýjun

Í undantekningartilvikum er heimilt er að endurnýja dvalarleyfi á grundvelli lögmæts og sérstaks tilgangs ef skilyrði þess eru enn uppfyllt.

Sækja þarf um endurnýjun dvalarleyfis a.m.k. 4 vikum áður en gildistími leyfis rennur út. Sé það gert er umsækjanda heimilt að dvelja á Íslandi á meðan umsókn um endurnýjun er til vinnslu hjá Útlendingastofnun. Sé ekki sótt um endurnýjun dvalarleyfis áður en gildistími rennur út verður farið með umsókn eins og um fyrsta leyfi sé að ræða en ekki endurnýjun. Umsókn sem berst eftir að gildistími eldra leyfis er útrunninn verður synjað ef umsækjandi hefur ekki heimild til dvalar á landinu á meðan umsókn er til vinnslu. Sjá nánar um feril umsókna og endurnýjun dvalarleyfis.

Umsækjandi þarf að mæta í eigin persónu við endurnýjun dvalarleyfis, annað hvort í afgreiðslu Útlendingastofnunar eða til sýslumanna utan höfuðborgarsvæðis. Tekin er mynd af umsækjanda og þarf hann að veita rithandarsýnishorn. Umsækjanda ber að hafa vegabréf sitt meðferð.

 

Gögn sem þarf að leggja fram:

  1. Umsókn um dvalarleyfi. (Vinsamlegast hlaðið niður og vistið á tölvu áður en fyllt er út). Í frumriti, vel útfyllt og undirrituð af umsækjanda.
  2. Ljósrit vegabréfs. Gildistími skal vera minnst 90 dagar umfram gildistíma dvalarleyfis. Ljósrit þarf að vera af persónusíðu og síðu með undirskrift umsækjanda.
  3. Greinargerð og gögn til staðfestingar á að tilgangur dvalar sé óbreyttur.
  4. Framfærslugögn sem staðfesta trygga framfærslu á dvalartíma.

 

Gögn sem er heimilt að leggja fram:

  1. Umboð í frumriti vottað af tveimur vottum. Athugið að umboð þarf ekki að berast nema umsækjandi vilji að einhver annar en hann sjálfur fái upplýsingar um vinnslu umsóknarinnar hjá Útlendingastofnun.
  2. Umsókn um atvinnuleyfi vegna sérstakra aðstæðna.Í frumriti, undirrituð bæði af umsækjanda og atvinnurekanda og staðfest af viðeigandi stéttarfélagi.
  3. Ráðningarsamningur.Í frumriti og undirritaður bæði af umsækjanda og atvinnurekanda. Launakjör umsækjanda þurfa að koma fram og ná viðmiði um lágmarksframfærslu. 

Það er á ábyrgð umsækjanda að leggja fram nauðsynleg fylgigögn umsóknar. Ef fullnægjandi gögn berast ekki til Útlendingastofnunar með umsókninni getur það leitt til þess að afgreiðsla umsóknar tefjist eða að umsókninni verði synjað. Útlendingastofnun getur óskað eftir viðbótargögnum þegar sérstakar ástæður mæla með því.

 

  • Hverjir þurfa dvalarleyfi?
  • Ferill umsókna
    • Útgáfustaðir D-áritana
  • Afgreiðslutími og umsóknir í vinnslu
  • Langtímavegabréfsáritun
  • Langtímavegabréfsáritun fyrir fólk í fjarvinnu og aðstandendur þess
  • Fjölskyldusameining
  • - Maki eða sambúðarmaki
  • - Barn
  • - Foreldri 67 ára og eldri
  • - Foreldri barns yngra en 18 ára
  • Atvinnuleyfi
    • Flýtimeðferð
  • Nám
    • Endurnýjun og námsárangur
  • Vistráðning / au-pair
  • Vinnudvöl fyrir ungt fólk
  • Sjálfboðaliðar
  • Trúboðar
  • Lögmætur tilgangur
  • Sérstök tengsl við Ísland
  • Ríkisborgarar EES/EFTA og aðstandendur þeirra
    • EES og EFTA ríkin
  • Ótímabundið dvalarleyfi
  • Réttindi
  • Grunnskilyrði
  • Gagnakröfur
    • FBI sakavottorð
  • Heimild til dvalar
  • Synjun umsóknar um dvalarleyfi
  • Afturköllun dvalarleyfis
  • Algengar spurningar
  • Brottvísun og endurkomubann

Tenglar

  • Dómsmálaráðuneytið
  • Kærunefnd útlendingamála
  • Rauði krossinn
  • Fjölmenningarsetur
  • Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna
  • Mannréttindaskrifstofa
  • Vinnumálastofnun
  • Þjóðskrá
  • Persónuvernd

Upplýsingar

  • Útlendingastofnun
  • Dvalarleyfi
  • Áritanir
  • Ríkisborgararéttur
  • Alþjóðleg vernd

OPNUNARTÍMI

Mánudaga til fimmtudaga 9 - 14
Föstudaga 9 - 12

Sími: 444 0900

Netfang: This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

Staðsetning

Útlendingastofnun | Dalvegi 18 | 201 Kópavogi | 444 0900 | utl@utl.is

Kt. 670269-6399 | Rkn. 0515-26-410424 

Jafnlaunavottun adalmerki 2020 2023 f ljosan grunn hr monitor 2020