Hvenær má gefa út langtímavegabréfsáritun vegna fjarvinnu?
Langtímavegabréfsáritun vegna fjarvinnu má gefa út þegar:
- umsækjandi er undanþeginn áritunarskyldu
- umsækjandi hefur ekki áður fengið útgefna langtímavegabréfsáritun á síðustu tólf mánuðum frá íslenskum stjórnvöldum,
- tilgangur dvalar er að stunda fjarvinnu frá Íslandi,
- ekki er ætlun umsækjanda að setjast að á landinu
- og umsækjandi getur sýnt fram erlendar tekjur sem svara 1.000.000 kr. á mánuði eða 1.300.000 kr., ef einnig er sótt um fyrir maka eða sambúðarmaka.
Hvað er fjarvinna?
Með fjarvinnu er átt við skipulag og framkvæmd vinnu með notkun upplýsingatækni, þar sem vinna sem einnig væri hægt að inna af hendi á starfsstöð erlendis er unnin utan þeirrar starfsstöðvar hér á landi. Þeim sem sinnir fjarvinnu er óheimilt að starfa í þágu innlendra aðila eða starfa á annan hátt á íslenskum vinnumarkaði. Slík störf krefjast útgáfu dvalar- og atvinnuleyfis.
Handhafi langtímavegabréfsáritunar vegna fjarvinnu fær ekki útgefna íslenska kennitölu.
Hverjir geta fengið útgefna langtímavegabréfsáritun vegna fjarvinnu?
- Erlendir ríkisborgarar sem vilja sinna fjarvinnu frá Íslandi sem launþegar í þágu erlends vinnuveitanda.
- Erlendir ríkisborgarar sem vilja sinna fjarvinnu frá Íslandi sem sjálfstætt starfandi einstaklingar.
Hverjir geta fengið útgefna langtímavegabréfsáritun sem aðstandendur fólks í fjarvinnu?
- Makar og sambúðarmakar, ef þeir eru undanþegnir áritunarskyldu.
- Börn einstaklinga í fjarvinnu eða maka/sambúðarmaka þeirra, ef þau eru yngri en 18 ára og undanþegin áritunarskyldu.
Til hversu langs tíma er hægt að gefa úr langtímavegabréfsáritun vegna fjarvinnu?
- Ef umsækjandi sækir um frá búsetulandi og kemur ekki til Íslands áður en ákvörðun er tekin, er heimilt að gefa út langtímavegabréfsáritun vegna fjarvinnu í allt að 180 daga.
- Ef umsækjandi sækir um frá búsetulandi en kemur inn á Schengen-svæðið áður en ákvörðun er tekin, er heimilt að gefa út langtímavegabréfsáritun vegna fjarvinnu í allt að 180 daga að frádregnum þeim fjölda daga sem umsækjandi dvelur á Schengen-svæðinu fyrir útgáfu áritunar.
- Ef umsækjandi sækir um eftir að hann er kominn inn á Schengen-svæðið, er heimilt að gefa út langtímavegabréfsáritun í allt að 90 daga.
Hvar gildir langtímavegabréfsáritun vegna fjarvinnu?
Heimilt er að gefa út langtímavegabréfsáritun vegna fjarvinnu sem gildir til dvalar á Íslandi í allt að 180 daga.
Langtímavegabréfsáritun vegna fjarvinnu veitir jafnframt heimild til dvalar í öðrum Schengen-ríkjum í allt að 90 daga á 180 daga tímabili.
Vinsamlegast athugið að ólíkar reglur gilda í Schengen-ríkjunum um takmarkanir á ferðalögum vegna Covid-19. Nauðsynlegt er að kynna sér hvaða reglur gilda í því Schengen-ríki sem ferðast á um eða til.
Hvernig er sótt um langtímavegabréfsáritun vegna fjarvinnu?
Greiða þarf afgreiðslugjald fyrir umsókn um langtímavegabréfsáritun áður en hún er lögð fram.
Ef einnig er sótt um fyrir maka, sambúðarmaka eða börn þarf að fylla út umsókn fyrir hvern og einn og greiða gjald fyrir hverja umsókn sérstaklega.
Umsóknum er aðeins hægt að skila á pappírsformi, annað hvort í þar til gerðan skilakassa í anddyri Útlendingastofnunar að Dalvegi 18 eða með því að senda umsókn í bréfpósti á sama heimilisfang. Einnig er hægt að leggja inn umsóknir hjá embættum sýslumanna utan höfuðborgarsvæðisins.
Ef umsækjandi uppfyllir skilyrði fyrir veitingu langtímavegabréfsáritunar vegna fjarvinnu, fær hann senda staðfestingu á því frá Útlendingastofnun.
Áritun verður ekki gefin út fyrr en umsækjandi er kominn til Íslands. Hann þarf að hafa samband við Útlendingastofnun (This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.) eftir komuna til landsins til að fá áritun útgefna. Áritun gildir frá þeim degi sem hún er gefin út.
Hvaða gögn þarf að leggja fram með umsókn ?
Umsækjandi um langtímavegabréfsáritun skal leggja fram öll þau gögn sem Útlendingastofnun gerir kröfu um og teljast nauðsynleg við vinnslu umsóknar.
Ef fullnægjandi gögn berast ekki með umsókninni getur það leitt til þess að afgreiðsla umsóknar tefjist eða að umsókninni verði synjað. Útlendingastofnun getur óskað eftir viðbótargögnum þegar sérstakar ástæður mæla með því.
- Greiðslukvittun. Koma þarf skýrt fram fyrir hvern er verið að greiða. Skráið nafn umsækjanda og fæðingardag (dd.mm.áááá) í tilvísun.
- Umsókn um langtímavegabréfsáritun fyrir fólk í fjarvinnu og aðstandendur þess (á ensku). Vinsamlegast hlaðið niður og vistið á tölvu áður en fyllt er út.
- Passamynd (35mm x 45mm) ekki eldri en 6 mánaða.
- Ljósrit vegabréfs. Gildistími skal vera minnst 90 dagar umfram gildistíma áritunar. Ljósrit þarf að vera af persónusíðu, síðu með undirskrift umsækjanda, áritunum, sem og komu- og brottfararstimplum inn á og út af Schengen-svæðinu á síðastliðnu ári.
- Sjúkra- og slysatrygging. Sé umsækjandi ekki tryggður hjá íslensku tryggingafélagi þurfa að fylgja nákvæmar upplýsingar um tryggingu frá heimalandi. Á afriti af tryggingaskírteini þurfa að koma fram upplýsingar um hvar viðkomandi trygging gildir og hversu lengi.
- Gögn sem staðfesta tilgang dvalar hér á landi. Staðfesting frá vinnuveitanda um að umsækjanda sé heimilt að inna starf sitt af hendi hér á landi í fjarvinnu, ef umsækjandi er launþegi, eða staðfesting á því að umsækjandi sé sannanlega sjálfstætt starfandi í því landi sem hann hefur fasta búsetu eða starfar alla jafna, ef umsækjandi er sjálfstætt starfandi.
- Tekjur. Staðfesting á að tekjur vegna fjarvinnunnar muni samsvara kr. 1.000.000 á mánuði. Launþegi getur til dæmis framvísað ráðningarsamningi með upplýsingum um mánaðarlaun. Sjálfstætt starfandi einstaklingur getur til dæmis framvísað samningum um þau verkefni sem hann hyggst vinna í fjarvinnu með upplýsingum um umsamdar greiðslur. Athugið að ef einnig er sótt um fyrir maka eða sambúðarmaka þurfa tekjur fyrir fjarvinnuna að samsvara kr. 1.300.000 á mánuði.
- Sakavottorð. Ef ástæða þykir til, getur Útlendingastofnun farið fram á að umsækjandi skili inn sakavottorði.
Hvernig er sótt um fyrir maka/sambúðarmaka?
Með umsókn um langtímavegabréfsáritun fyrir maka eða sambúðarmaka einstaklings sem er í fjarvinnu frá Íslandi þarf að leggja fram annað hvort eftirfarandi gagna til viðbótar við þau gögn sem talin eru upp hér að ofan (1.-5.).
- Hjúskaparvottorð.
- Gögn sem staðfesta að sambúð hafi varað í a.m.k. eitt ár.
Skila þarf inn afriti af vottorðum. Útlendingastofnun getur þó óskað eftir frumritum og eða lögformlegri staðfestingu ef svo ber undir, sjá upplýsingar um kröfur til fylgigagna.
Hvernig er sótt um fyrir barn?
Með umsókn um langtímavegabréfsáritun fyrir barn (yngra en 18 ára) foreldris sem er í fjarvinnu frá Íslandi eða maka/sambúðarmaka viðkomandi þarf að leggja fram eftirfarandi gögn til viðbótar við þau gögn sem talin eru upp hér að ofan (1.-5.).
- Fæðingarvottorð.
- Forsjárgögn. Aðeins forsjárforeldrar geta sótt um langtímavegabréfsáritun fyrir barn sitt. Eftirfarandi gögn geta sýnt fram á hver fer með forsjá barns:
- Forsjárgögn sem gefin eru út af þar til bæru stjórnvaldi, s.s. sýslumanni eða dómstólum. Skilyrði er að gögnin séu ekki eldri en 6 mánaða. Ef barnið kemur aðeins með öðru forsjárforeldri sínu til Íslands þarf einnig að leggja fram frumrit vottaðrar yfirlýsingar þess foreldris sem ekki kemur með til Íslands um að það sé samþykkt því að barnið fái langtímavegabréfsáritun á Íslandi.
- Skilnaðargögn. Ef foreldrar barns eru skildir að lögum og fram kemur í skilnaðargögnum hver fer með forsjá barns teljast þau gögn nægileg til staðfestingar á forsjá.
- Dánarvottorð. Ef annað forsjárforeldri barns er látið og eftirlifandi forsjárforeldri fer eitt með forsjá þess, telst staðfest afrit dánarvottorðs nægileg staðfesting á forsjá.
- Staðfesting varðandi nám barns. Með umsókn barns á aldrinum 6 til 16 ára þarf að fylgja skrifleg staðfesting á því a) að barn fái fjarkennslu frá skóla í heimaríki, b) að skóli á Íslandi hafi samþykkt að taka við barninu eða c) að barnið fái heimakennslu.
Skila þarf inn afriti af vottorðum. Útlendingastofnun getur þó óskað eftir frumritum og eða lögformlegri staðfestingu ef svo ber undir, sjá upplýsingar um kröfur til fylgigagna.