• Íslenska
  • English (UK)

Sidebar

  • Heim
  • Um Útlendingastofnun
    • Útlendingastofnun
    • Fréttir
    • Greinar
    • Tölfræði
      • Tölfræði leyfasviðs
      • Tölfræði verndarsviðs
    • Ársskýrslur
    • Stefnur Útlendingastofnunar
      • Stefna Útlendingastofnunar til ársins 2023
      • Launastefna
      • Jafnlaunastefna
    • Skipurit
    • Gjaldskrá
    • Eyðublöð
    • Afgreiðslutími
    • Samstarfssamningar
    • Lög og reglugerðir
    • Algengar spurningar
    • Hafa samband
    • COVID-19
  • Eyðublöð
  • Afgreiðslutími
  • Tímabókanir
  • Algengar spurningar
  • Lög og reglugerðir
  • Tölfræði
    • Tölfræði leyfasviðs
    • Tölfræði verndarsviðs
  1. Heim
  2. Kröfur um ferðaskilríki

Kröfur um ferðaskilríki

Útlendingar sem koma til landsins þurfa að hafa meðferðis gild ferðaskilríki eða kennivottorð sem heimila þeim för yfir landamæri. 

Til þess að teljast gilt skal ferðaskilríki eða kennivottorð útlendings, frá ríki utan Evrópska efnahagssvæðisins (EES) eða aðildarríkja EFTA,

  • hafa gildistíma í að minnsta kosti 3 mánuði umfram brottfarardag og
  • vera gefið út á síðastliðnum 10 árum.

Ferðaskilríki ríkisborgara EES/EFTA-ríkja þurfa aðeins að hafa gildistíma umfram dvöl þeirra á Íslandi.

Eftirtalin erlend kennivottorð eru viðurkennd sem ferðaskilríki í stað vegabréfs við komu til landsins og brottför

1. Ferðaskilríki fyrir flóttamenn sem gefið er út í samræmi við samning um réttarstöðu flótta-manna frá 28. júlí 1951. Ferðaskilríkið verður að vera gilt til ferðar til baka til útgáfuríkisins.

2. Skilríki sem gefið er út af þar til bæru yfirvaldi til þess sem er ríkisfangslaus eða er ríkisborgari í öðru landi en því sem gefið hefur út skjalið, enda uppfylli það að öðru leyti skilyrði sem sett eru í III. kafla reglugerðar um útlendinga.

3. Eftirtalin kennivottorð sem gefin eru út til ríkisborgara hlutaðeigandi lands:

Austurríki Personalausweis, útgefið til ríkisborgara Austurríkis. 
Belgía Carte d'Identité (Identiteitskaart, Personalausweis, Identity card), útgefið til ríkisborgara Belgíu. Identiteitsdocument (Document d'identité, Identitätsdokument, Identity document), útgefið til belgískra barna undir 12 ára aldri, skilyrði er þó að barnið ferðist með foreldri sem ber fullnægjandi ferðaskilríki.
Búlgaría Lichna karta (ЛИЧНА КАРТА, Identity card), útgefið til ríkisborgara Búlgaríu.
Eistland Eesti Vabariik Isikutunnistus (Republic of Estonia Identity Card), útgefið til ríkisborgara Eistlands.
Finnland Henkilökortti (Identitetskort, Identity Card), útgefið til ríkisborgara Finnlands.
Frakkland   Carte Nationale d'Identité, útgefið til ríkisborgara Frakklands.
Grikkland Deltio Taytotitas (ΔΕΛΤΙΟ ΤΑΥΤΟΤΗΤΑΣ), útgefið til ríkisborgara Grikklands.
Holland Nederlandse Identiteitskaart (Identity card, Carte d'identité), útgefið til ríkisborgara Hollands.
Írland Pas/Passport/Passeport (vegabréfskort (e. passport card)), útgefið til ríkisborgara Írlands.
Ítalía Carta d'Identità, útgefið til ríkisborgara Ítalíu.
Kýpur Deltio Taytotitas (ΔΕΛΤΙΟ ΤΑΥΤΟΤΗΤΑΣ, Kimlik Karti, Identity Card), útgefið til ríkisborgara Kýpur.
Lettland Personas apliecība (Personal Identity Card), útgefið til ríkisborgara Lettlands.
Liechtenstein   Identitätskarte (Carte d'Identité, Carta d'Identità), útgefið til ríkisborgara Liechtenstein.
Litháen Asmens tapatybés kortelé (Personal Identity Card), útgefið til ríkisborgara Litháen.
Lúxemborg Carte d'Identité (Identity Card, Personalausweis), útgefið til ríkisborgara Lúxemborgar.
Malta Karta Ta'l-Identità, útgefið til ríkisborgara Möltu.
Portúgal Bilhete de Identidade de Cidadão Nacional (Carte d'Identité, Identity card of national citizen) og Cartão de Cidadão (citizen card), útgefið til ríkisborgara Portúgal.
Pólland Rzeczpospolita Polska Dowód Osobisty (Republic of Poland Identity Card), útgefið til ríkisborgara Póllands.
Rúmenía Carte d'Identite (Carte de identitate, Identity card), útgefið til ríkisborgara Rúmeníu.
Slóvakía Obciansky Preukaz (Identification Card), útgefið til ríkisborgara Slóvakíu.
Slóvenía Osebna Izkaznica (Identity Card), útgefið til ríkisborgara Slóveníu.
Spánn Documento Nacional de Identidad (DNI), útgefið til ríkisborgara Spánar.
Sviss Carte d'Identité Citoyen Suisse (Identitätskarte Schweizerbürger, Carta d'Identità Cittadino Svizzero), útgefið til ríkisborgara Sviss. Identitätskarte (Carte d'Identité, Carta d'Identità, Carta d'Identitad, Identity Card), útgefið eftir 30. júní 1994 til ríkisborgara Sviss.
Svíþjóð Nationellt identitetskort (National Identity Card, Carte nationale d'identité), útgefið til ríkisborgara Svíþjóðar.
Tékkland Občanský průkaz (Czech Republic Identification Card), útgefið til ríkisborgara Tékklands.
Ungverjaland Személyazonosító Igazolvány (Identity card), útgefið til ríkisborgara Ungverjalands.
Þýskaland Personalausweis (Identity card, Carte d'Identite), Vorläufiger Personalausweis (Identity card, Carte d'identite), útgefið til ríkisborgara Þýskalands og Reiseausweis als Passersatz. Ef ferðaskilríkið er án ljósmyndar af handhafa er áskilið að útrunnu vegabréfi eða Personalausweis verði jafnframt framvísað.

 

4. Sjóferðabók (seaman's book, seafarer's identity document) sem gefin er út í samræmi við ILO-samninga um persónuskilríki sjómanna nr. 108 frá 1958 eða 185 frá 2003 ásamt skjölum sem sýna fram á skráningu í eða úr skipsrúmi, í íslenskri eða erlendri höfn.

5. Áhafnarskírteini fyrir flugáhafnir sem gefin eru út af þar til bæru yfirvaldi í aðildarríki að Alþjóðaflugmálastofnuninni (ICAO) ef handhafar þess sýna fram á að þeir séu skráðir í áhöfn loftfars sem er á Íslandi.

6. NATO „Travel Order - Ordre de Mission OTAN“ (fyrir starfsmenn NATO sem hafa stöðu hermanna), enda hafi handhafi herkennivottorð og sérstök eða sameiginleg ferðafyrirmæli NATO.

7. „Leave order“ NATO, enda hafi handhafi herkennivottorð og gilda ferðaheimild til Íslands. Skilríkið veitir heimild til dvalar á Íslandi í allt að þrjá mánuði.

8. Ferðabréf (laissez-passer) Sameinuðu þjóðanna fyrir starfsmenn Sameinuðu þjóðanna, sérstofnana Sameinuðu þjóðanna og Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar ef handhafar eru á ferðalagi í þágu framangreindra stofnana og þeir framvísa jafnframt ferðabréfi, yfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna eða þeirrar stofnunar sem þeir starfa hjá, um að þeir séu að reka erindi Sameinuðu þjóðanna eða viðkomandi stofnunar.

9. Gild ferðabréf (Ausweis, Laissez-passer, Lascia-passare) sem gefin eru út af Evrópusambandinu.

10. Gild ferðabréf fyrir íbúa Kosovo (UNMIK Travel Document) sem gefin eru út af skrifstofu Sameinuðu þjóðanna í Kosovo (UNMIK - United Nations Mission in Kosovo).

11. Gild ferðaskilríki sem gefin eru út í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/1953 um samevrópskt ferðaskilríki vegna endursendinga ríkisborgara þriðju landa sem ekki hafa rétt til dvalar. 


Upplýsingarnar á þessari síðu eru í samræmi við viðauka 3 við reglugerð um för yfir landamæri nr. 866/2017, að teknu tilliti til reglugerða um breytingu á för yfir landamæri nr. 502/2019 og 701/2019.

  • Vegabréfsáritanir
  • Hverjir þurfa áritun?
  • Hverjir þurfa ekki áritun?
  • Hverjir þurfa vegabréfsáritun til gegnumferðar?
  • Hvar er hægt að sækja um áritun?
  • Hvernig sæki ég um áritun?
  • Kröfur um ferðaskilríki
  • Hvað er VIS-kerfið?
  • Schengen-ríkin
  • Langtímavegabréfsáritun
  • Langtímavegabréfsáritun fyrir fólk í fjarvinnu og aðstandendur þess
  • Algengar spurningar

Tenglar

  • Dómsmálaráðuneytið
  • Kærunefnd útlendingamála
  • Rauði krossinn
  • Fjölmenningarsetur
  • Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna
  • Mannréttindaskrifstofa
  • Vinnumálastofnun
  • Þjóðskrá
  • Persónuvernd

Upplýsingar

  • Útlendingastofnun
  • Dvalarleyfi
  • Áritanir
  • Ríkisborgararéttur
  • Alþjóðleg vernd

OPNUNARTÍMI

Mánudaga til fimmtudaga 9 - 14
Föstudaga 9 - 12

Sími: 444 0900

Netfang: This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

Staðsetning

Útlendingastofnun | Dalvegi 18 | 201 Kópavogi | 444 0900 | utl@utl.is

Kt. 670269-6399 | Rkn. 0515-26-410424 

Jafnlaunavottun adalmerki 2020 2023 f ljosan grunn hr monitor 2020