Þegar erlendur ríkisborgari hefur verið búsettur á Íslandi í ákveðinn tíma og uppfyllir skilyrði laga um íslenskan ríkisborgararétt getur hann lagt fram umsókn um ríkisborgararétt.
Skilyrði fyrir veitingu ríkisborgararéttar eru tvenns konar, annars vegar búsetuskilyrði á grundvelli 8. gr. laganna og hins vegar sérstök skilyrði á grundvelli 9. gr. og 9. gr. a sömu laga. Hér má nálgast upplýsingar um þau grunnskilyrði sem uppfylla þarf til að eiga rétt á íslensku ríkisfangi.
Flokkar umsókna
Ríkisborgararéttur fyrir fullorðna
- Almenn umsókn einstaklinga 18 ára og eldri og barna þeirra
- Umsókn á grundvelli hjúskapar eða staðfestrar samvistar með íslenskum ríkisborgara
- Umsókn á grundvelli sambúðar með íslenskum ríkisborgara
- Umsókn norræns ríkisborgara
- Umsókn á grundvelli stöðu sem flóttamanns
- Umsókn á grundvelli dvalarleyfis af mannúðarástæðum
- Umsókn á grundvelli ríkisfangsleysis
- Umsókn fyrrum íslensks ríkisborgara
- Umsókn til Alþingis
Ríkisborgararéttur fyrir norræna ríkisborgara
- Umsókn norræns ríkisborgara
- Tilkynning um íslenskan ríkisborgararétt fyrir norrænan ríkisborgara
- Tilkynning norræns ríkisborgara, sem áður var íslenskur ríkisborgari, um að öðlast íslenskan ríkisborgararétt að nýju
Ríkisborgararéttur fyrir börn íslensks ríkisborgara
- Umsókn á grundvelli þess að vera barn íslensks ríkisborgara
- Tilkynning um íslenskan ríkisborgararétt fyrir barn ókvænts íslensks föður fætt erlendis á tímabilinu 1. október 1998 til 30. júní 2018
- Tilkynning um íslenskan ríkisborgararétt fyrir barn fætt í hjúskap íslenskrar móður og erlends föður á tímabilinu 1. júlí 1964 til 30. júní 1982
Missa eða halda íslenskum ríkisborgararétti
- Beiðni um endurveitingu íslensks ríkisfangs
- Tilkynning um endurveitingu íslensks ríkisfangs
- Beiðni um að halda íslensku ríkisfangi
- Umsókn um lausn frá íslensku ríkisfangi
Aðrar umsóknir
- Tilkynning einstaklings á aldrinum 18-21 árs
Ýmsar upplýsingar
Umfjöllun um grunnskilyrði íslensks ríkisborgararéttar
Upplýsingar um feril umsóknar og afgreiðslutíma
Afgreiðslugjald. Athugið að umsókn er ekki tekin til afgreiðslu fyrr en greitt hefur verið fyrir hana.