Þeir sem njóta alþjóðlegrar verndar á Íslandi og dveljast löglega í landinu geta sótt um ferðaskírteini fyrir flóttamenn til ferða til útlanda, sjá 1. mgr. 46. gr. útlendingalaga.
Umsókn
- Umsókn um ferðaskírteini fyrir flóttamenn.
- Umsóknin þarf að vera vel út fyllt og undirrituð af umsækjanda.
- Hjá börnum undir 18 ára aldri þarf forsjáraðili/-aðilar að undirrita umsókn.
- Með umsókn þarf að afhenda gild vegabréf frá heimalandi eða önnur ferðaskilríki gefin út af öðru ríki sem umsækjandi hefur í fórum sínum. Ef vegabréf heimalands er útrunnið þarf að skila inn afriti af öllum blaðsíðum vegabréfsins.
- Hafi umsækjandi áður fengið útgefið ferðaskírteini þarf að skila því með umsókn.
Umsóknarferli
- Umsókn þarf að leggja fram hjá Útlendingastofnun að Dalvegi 18 eða sýslumannsembættum utan höfuðborgarsvæðisins.
- Þegar umsóknin hefur verið samþykkt er umsækjandi boðaður í myndatöku.
- Þegar ferðaskírteinið er tilbúið þarf umsækjandi að sækja það og greiða afgreiðslugjald.
Hafi vegabréf glatast eða eyðilagst skal tilkynna lögreglu það þegar í stað. Gera skal skriflega grein fyrir málavöxtum. Tilkynning um glatað vegabréf.
Synjun
Heimilt er að synja útgáfu ferðaskírteinis þegar:
- Ekki er staðfest hver umsækjandi er eða vafi leikur á um hver hann er.
- Umsækjandi er eftirlýstur af lögreglu, gefin hefur verið út handtökuskipun á hann, lagt á hann farbann og umsækjandi ekki afplánað dóma.
- Umsækjandi hefur hlotið endanlegan dóm fyrir mjög alvarlegt afbrot og er talinn hættulegur samfélaginu.
- Ástæður sem varða öryggi ríkisins eða stefnu stjórnvalda í utanríkismálum mæla gegn því.
Afturköllun
Ferðaskírteini skal afturkalla þegar:
- Handhafi þess útvegar sér ferðaskilríki heimaríkis.
- Handhafi fær íslenskan ríkisborgararétt eða ríkisborgararétt annars ríkis.
- Alþjóðleg vernd er afturkölluð.
- Handhafa þess er samkvæmt lögum bannað að yfirgefa landið eða brottför frá landinu mundi fara í bága við dóm, úrskurð eða ákvörðun stjórnvalda.
- Útliti eða efni þess hefur verið breytt á ólögmætan hátt.