• Íslenska
  • English (UK)

Sidebar

  • Heim
  • Um Útlendingastofnun
    • Útlendingastofnun
    • Fréttir
    • Greinar
    • Tölfræði
      • Tölfræði leyfasviðs
      • Tölfræði verndarsviðs
    • Ársskýrslur
    • Stefnur Útlendingastofnunar
      • Stefna Útlendingastofnunar til ársins 2023
      • Launastefna
      • Jafnlaunastefna
      • Tungumálastefna
    • Skipurit
    • Gjaldskrá
    • Eyðublöð
    • Afgreiðslutími
    • Samstarfssamningar
    • Lög og reglugerðir
    • Algengar spurningar
      • Dvalarleyfi
      • Alþjóðleg vernd
      • Vegabréfsáritanir
      • Íslenskur ríkisborgararéttur
      • Túlkanir og þýðingar
    • Hafa samband
    • COVID-19
  • Eyðublöð
  • Afgreiðslutími
  • Tímabókanir
  • Hafa samband
  • Algengar spurningar
  • Tölfræði
    • Tölfræði leyfasviðs
    • Tölfræði verndarsviðs
  1. Heim
  2. Atvinnuleyfi

Dvalarleyfi vegna atvinnuþátttöku

Allir þeir sem eru með ríkisborgararétt í löndum utan EES og EFTA og ætla að vera á Íslandi lengur en í þrjá mánuði þurfa að hafa dvalarleyfi hér á landi.

Dvalarleyfi vegna atvinnuþátttöku er fyrir einstakling 18 ára eða eldri, sem hefur ráðið sig í vinnu á Íslandi. Skilyrði fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli atvinnuþátttöku er að atvinnuleyfi hafi verið veitt af Vinnumálastofnun. 

Dvalarleyfin eru veitt

  • vegna starfs sem krefst sérfræðiþekkingar,
  • vegna skorts á starfsfólki,
  • fyrir íþróttafólk, og
  • fyrir sérhæfða starfsmenn á grundvelli samstarfs- eða þjónustusamnings.

Dvalarleyfi vegna atvinnuþátttöku eru veitt á grundvelli 61. – 64. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

 

Þú gætir átt rétt á dvalarleyfi á grundvelli atvinnu ef öll eftirfarandi skilyrði eru uppfyllt, ásamt fleirum

  • Þú ert eldri en 18 ára,
  • ert með vinnu og getur lagt fram ráðningarsamning,
  • getur sýnt fram á að þú getir framfleytt þér á dvalartíma,
  • ert sjúkratryggð(ur) hjá íslensku tryggingafélagi (undir liðnum vátryggingafélög) eða erlendu tryggingafélagi sem hefur starfsleyfi á Íslandi (undir liðnum erlend vátryggingafélög),
  • hefur ekki afplánað refsingu erlendis á síðustu 5 árum eða verið dæmd(ur) til lengri refsingar en sem samsvarar 3 mánaða fangelsi samkvæmt íslenskum lögum, og
  • átt vegabréf þar sem gildistími er minnst 90 dagar umfram áætlaðan gildistíma dvalarleyfis. 


Þú mátt ekki

  • Byrja að vinna fyrr en atvinnuleyfi hefur verið veitt,
  • vinna hjá öðrum atvinnurekanda en þeim sem atvinnuleyfið var veitt til,
  • vera lengur frá landinu en 90 daga á hverju 12 mánaða tímabili á meðan leyfið er í gildi, annars getur dvalarleyfið verið fellt niður eða afturkallað.

 

Umsókn um dvalar- og atvinnuleyfi og önnur fylgigögn skulu lögð fram hjá Útlendingastofnun eða sýslumönnum utan höfuðborgarsvæðisins. Það athugist að mismunandi reglur gilda um heimild til dvalar þegar umsókn er lögð fram og á meðan hún er til vinnslu. Sjá nánari upplýsingar í umfjöllun um réttindi sem fylgja leyfum á grundvelli atvinnuþátttöku.

Ef umsækjandi uppfyllir ekki þessi skilyrði og þau skilyrði sem fjallað er um neðar verður dvalarleyfi synjað og umsækjandi þarf að yfirgefa landið. Yfirgefi umsækjandi ekki landið getur það leitt til brottvísunar og endurkomubanns. Endurkomubann felur í sér bann við endurkomu á Schengen-svæðið um ákveðinn tíma eða að lágmarki 2 ár.

Það er á ábyrgð umsækjanda að sækja um endurnýjun dvalarleyfis a.m.k. 4 vikum áður en gildistími leyfis rennur út. Sé það gert er umsækjanda heimilt að dvelja á Íslandi á meðan umsókn um endurnýjun er til vinnslu hjá Útlendingastofnun. Sé ekki sótt um endurnýjun dvalarleyfis áður en gildistími rennur út verður farið með umsókn eins og um fyrsta leyfi sé að ræða en ekki endurnýjun. Umsókn sem berst eftir að gildistími eldra leyfis er útrunninn verður synjað ef umsækjandi hefur ekki heimild til að dvelja á landinu meðan umsókn er til vinnslu. Sjá nánar um feril umsókna og heimild til dvalar.  

 

Nánar um dvalarleyfi vegna atvinnuþátttöku

Tegundir dvalarleyfa, skilyrði þeirra og réttindi sem fylgja

Dvalarleyfi vegna starfs sem krefst sérfræðiþekkingar

Dvalarleyfi vegna skorts á starfsfólki

Dvalarleyfi fyrir íþróttafólk

Dvalarleyfi fyrir sérhæfða starfsmenn á grundvelli samstarfs- eða þjónustusamnings

Umsókn um fyrsta leyfi

Endurnýjun

Sérfræðingur í atvinnuleit

 

Tegundir dvalarleyfa, skilyrði þeirra og réttindi sem fylgja

Dvalarleyfi vegna atvinnuþátttöku skiptast í fjóra flokka. Skilyrði fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli atvinnuþátttöku eru að grunnskilyrði dvalarleyfis séu uppfyllt og að atvinnuleyfi hafi verið veitt af Vinnumálastofnun. Atvinnuleyfið er skilyrt við tiltekinn atvinnurekanda, en vilji umsækjandi skipta um vinnu þarf að sækja um nýtt atvinnuleyfi hjá hinum nýja atvinnurekanda. Ekki má byrja að vinna fyrr en atvinnuleyfi hefur verið veitt. Sjá nánari upplýsingar um atvinnuleyfi á heimasíðu Vinnumálastofnunar.

 

Dvalarleyfi vegna starfs sem krefst sérfræðiþekkingar

Heimilt er að veita dvalarleyfi vegna starfs hér á landi sem krefst sérfræðiþekkingar. Samkvæmt lögum um atvinnuréttindi útlendinga þarf sérfræðiþekking umsækjanda að vera nauðsynleg atvinnurekandanum og fela í sér háskóla-, iðn-, list- eða tæknimenntun sem viðurkennd er hér á landi. Sjá nánari skilyrði fyrir veitingu atvinnuleyfis á heimasíðu Vinnumálastofnunar.

Réttindi sem fylgja dvalarleyfinu eru eftirfarandi

  • Umsækjandi sem ekki er áritunarskyldur má vera staddur á landinu þegar umsókn er lögð fram og þegar hún er til vinnslu, svo lengi sem dvöl á Schengen-svæðinu fer ekki yfir 90 daga á sl. 180 daga tímabili. Umsækjandi sem er áritunarskyldur má einnig vera staddur á landinu þegar sótt er um leyfið og það er til vinnslu, svo lengi sem vegabréfsáritun er í gildi. Fari dvöl fram yfir þann tíma stöðvast vinnsla umsóknar þar til umsækjandi hefur farið af landi brott og lagt fram brottfararspjald því til sönnunar. Umsókn sem berst frá umsækjanda sem ekki hefur ofangreindar heimildir til dvalar verður synjað.
  • Dvalarleyfið má veita til allt að 2 ára, en þó ekki til lengri tíma en sem nemur gildistíma atvinnuleyfis.
  • Heimilt er að endurnýja dvalarleyfið í allt að 2 ár í senn, séu skilyrði leyfis enn uppfyllt, en þó ekki til lengri tíma en sem nemur gildistíma atvinnuleyfis.
  • Heimilt er að endurnýja dvalarleyfi umsækjanda sem misst hefur starf sitt í allt að 3 mánuði frá atvinnumissi eða þeim tíma sem uppsagnarfrestur er liðinn, til að umsækjandi geti leitað sér annars starfs á grundvelli sérfræðiþekkingar sinnar.
  • Dvalarleyfið veitir rétt til fjölskyldusameiningar. Hægt er að sækja um dvalarleyfi vegna fjölskyldusameiningar fyrir:

    • maka umsækjanda eða sambúðarmaka eftir a.m.k. 1 ár í sambúð,
    • börn umsækjanda yngri en 18 ára, ef umsækjandi hefur forsjá þeirra,
    • foreldra umsækjanda 67 ára og eldri.

  • Dvalarleyfið getur verið grundvöllur ótímabundins dvalarleyfis.

Þú mátt ekki

  • Byrja að vinna fyrr en atvinnuleyfi hefur verið veitt,
  • vinna hjá öðrum atvinnurekanda en þeim sem atvinnuleyfið var veitt til,
  • vera lengur frá landinu en 90 daga á hverju 12 mánaða tímabili á meðan leyfið er í gildi, annars getur dvalarleyfið verið fellt niður eða afturkallað.
  •  Umsóknareyðublað



Dvalarleyfi vegna skorts á starfsfólki

Heimilt er að veita dvalarleyfi vegna atvinnu vegna skorts á starfsfólki hér á landi. Samkvæmt lögum um atvinnuréttindi útlendinga er skilyrði að starfsfólk fáist hvorki á innlendum vinnumarkaði né innan EES-, EFTA-ríkja og Færeyja. Sjá nánari skilyrði fyrir veitingu atvinnuleyfis á heimasíðu Vinnumálastofnunar.   

Réttindi sem fylgja dvalarleyfinu eru eftirfarandi

  • Umsækjandi sem er áritunarskyldur má ekki vera staddur á landinu þegar sótt er um dvalarleyfið og á meðan það er til vinnslu. Slíkri umsókn verður synjað. Umsækjandi sem ekki er áritunarskyldur má vera staddur á landinu þegar umsókn er lögð fram og þegar hún er til vinnslu, svo lengi sem dvöl á Schengen-svæðinu fer ekki yfir 90 daga á sl. 180 daga tímabili. Fari dvöl fram yfir þann tíma stöðvast vinnsla umsóknar þar til umsækjandi hefur farið af landi brott og lagt fram brottfararspjald því til sönnunar.
  • Dvalarleyfið má veita til allt að 1 árs, en þó aldrei lengur en sem nemur gildistíma atvinnuleyfis.
  • Heimilt er að endurnýja dvalarleyfið í allt að 1 ár í senn, séu skilyrði leyfis enn uppfyllt, en þó ekki til lengri tíma en sem nemur gildistíma atvinnuleyfis. Sé um að ræða skýrt afmarkaða og tímabundna framkvæmd er heimilt að endurnýja dvalarleyfi til lengri tíma.
  • Ekki er hægt að fá leyfi á þessum grundvelli að nýju fyrr en viðkomandi hefur dvalist erlendis í samfellt 2 ár frá lokum gildistíma leyfisins. Undantekning er þegar umsækjandi starfar hér á landi skemur en 8 mánuði á hverju 12 mánaða tímabili.
  • Dvalarleyfið veitir ekki rétt til fjölskyldusameiningar.
  • Dvalarleyfið getur verið grundvöllur ótímabundins dvalarleyfis.

Þú mátt ekki

  • Byrja að vinna fyrr en atvinnuleyfi hefur verið veitt,
  • vinna hjá öðrum atvinnurekanda en þeim sem atvinnuleyfið var veitt til,
  • vera lengur frá landinu en 90 daga á hverju 12 mánaða tímabili á meðan leyfið er í gildi, annars getur dvalarleyfið verið fellt niður eða afturkallað.
  •  Umsóknareyðublað

 

Dvalarleyfi fyrir íþróttafólk

Heimilt er að veita dvalarleyfi vegna starfa íþróttafólks hjá íþróttafélagi innan Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands. Á heimasíðu sambandsins má finna yfirlit yfir aðildarfélögin. Sjá nánari skilyrði fyrir veitingu atvinnuleyfis á heimasíðu Vinnumálastofnunar.  

Réttindi sem fylgja dvalarleyfinu eru eftirfarandi

  • Umsækjandi sem ekki er áritunarskyldur má vera staddur á landinu þegar umsókn er lögð fram og þegar hún er til vinnslu, svo lengi sem dvöl á Schengen-svæðinu fer ekki yfir 90 daga á sl. 180 daga tímabili. Umsækjandi sem er áritunarskyldur má einnig vera staddur á landinu þegar sótt er um leyfið og þegar það er til vinnslu, svo lengi sem vegabréfsáritun er í gildi. Fari dvöl fram yfir þann tíma stöðvast vinnsla umsóknar þar til umsækjandi hefur farið af landi brott og lagt fram brottfararspjald því til sönnunar. Umsókn sem berst frá umsækjanda sem ekki hefur ofangreindar heimildir til dvalar verður synjað.
  • Dvalarleyfið má veita til allt að 1 árs, en þó aldrei lengur en sem nemur gildistíma atvinnuleyfis.
  • Heimilt er að endurnýja dvalarleyfið í allt að 2 ár í senn, séu skilyrði leyfis enn uppfyllt, en þó ekki til lengri tíma en sem nemur gildistíma atvinnuleyfis.
  • Dvalarleyfið veitir rétt til fjölskyldusameiningar. Hægt er að sækja um dvalarleyfi vegna fjölskyldusameiningar fyrir:
    • maka umsækjanda eða sambúðarmaka eftir a.m.k. 1 ár í sambúð,
    • börn umsækjanda yngri en 18 ára, ef umsækjandi hefur forsjá þeirra,
    • foreldra umsækjanda 67 ára og eldri.
  • Dvalarleyfið getur verið grundvöllur ótímabundins dvalarleyfis.

Þú mátt ekki

  • Byrja að vinna fyrr en atvinnuleyfi hefur verið veitt,
  • vinna hjá öðrum atvinnurekanda en þeim sem atvinnuleyfið var veitt til,
  • vera lengur frá landinu en 90 daga á hverju 12 mánaða tímabili á meðan leyfið er í gildi, annars getur dvalarleyfið verið fellt niður eða afturkallað.
  •  Umsóknareyðublað


Dvalarleyfi fyrir sérhæfða starfsmenn á grundvelli samstarfs- eða þjónustusamnings

Heimilt er að veita dvalarleyfi vegna sérhæfðra starfa á vegum atvinnurekanda sem ekki hefur starfsstöð hér á landi. Skilyrði er að fyrir liggi samstarfssamningur um kennslu-, fræði- eða vísindastörf eða þjónustusamningur á milli erlends þjónustufyrirtækis og innlends notendafyrirtækis. Sjá nánari skilyrði fyrir veitingu atvinnuleyfis á heimasíðu Vinnumálastofnunar.  

Réttindi sem fylgja dvalarleyfinu eru eftirfarandi

  • Umsækjandi sem ekki er áritunarskyldur má vera staddur á landinu þegar umsókn er lögð fram og þegar hún er til vinnslu, svo lengi sem dvöl á Schengen-svæðinu fer ekki yfir 90 daga á sl. 180 daga tímabili. Umsækjandi sem er áritunarskyldur má einnig vera staddur á landinu þegar sótt er um leyfið og þegar það er til vinnslu, svo lengi sem vegabréfsáritun er í gildi. Fari dvöl fram yfir þann tíma stöðvast vinnsla umsóknar þar til umsækjandi hefur farið af landi brott og lagt fram brottfararspjald því til sönnunar. Umsókn sem berst frá umsækjanda sem ekki hefur ofangreindar heimildir til dvalar verður synjað.
  • Dvalarleyfið skal að jafnaði ekki veitt til lengri tíma en 6 mánaða á grundvelli sama samnings, þó ekki til lengri tíma en sem nemur gildistíma atvinnuleyfis.
  • Heimilt er að endurnýja dvalarleyfið í allt að 6 mánuði í senn, þó ekki til lengri tíma en sem nemur gildistíma atvinnuleyfis.
  • Dvalarleyfið veitir ekki rétt til fjölskyldusameiningar.
  • Dvalarleyfið getur ekki verið grundvöllur ótímabundins dvalarleyfis.

Þú mátt ekki

  • Byrja að vinna fyrr en atvinnuleyfi hefur verið veitt,
  • vinna hjá öðrum atvinnurekanda en þeim sem atvinnuleyfið var veitt til,
  • vera lengur frá landinu en 90 daga á hverju 12 mánaða tímabili á meðan leyfið er í gildi, annars getur dvalarleyfið verið fellt niður eða afturkallað.
  • Umsóknareyðublað



Umsókn um fyrsta leyfi

Með umsókn skulu fylgja öll þau gögn sem Útlendingastofnun gerir kröfu um til staðfestingar á því að skilyrði dvalarleyfis séu uppfyllt.  Vinnumálastofnun sér um útgáfu atvinnuleyfa á Íslandi og áframsendir Útlendingastofnun umsóknir um atvinnuleyfi til Vinnumálastofnunar til afgreiðslu. Það er forsenda útgáfu dvalarleyfis vegna atvinnuþátttöku að Vinnumálastofnun hafi veitt atvinnuleyfi.  

 

Gögn sem þarf að leggja fram

  1. Greiðslukvittun (ef greitt hefur verið fyrir umsóknina í banka). Koma þarf skýrt fram fyrir hvern er verið að greiða. Skráið nafn umsækjanda, fæðingardag og fæðingarár í tilvísun.
  2. Umsókn um dvalarleyfi. (Vinsamlegast hlaðið niður og vistið á tölvu áður en fyllt er út).
    Í frumriti, vel útfyllt og undirrituð af umsækjanda. Mikilvægt er að umsækjandi greini frá dvalarstað sínum hér á landi. Liggi heimilisfang ekki fyrir þegar umsókn er lögð fram skal umsækjandi leggja fram tilkynningu um dvalarstað innan 2 vikna frá því að umsækjandi kemur til landsins (t.d. við myndatöku).
  3. Passamynd (35mm x 45mm).
  4. Ljósrit vegabréfs. Gildistími skal vera minnst 90 dagar umfram gildistíma dvalarleyfis. Ljósrit þarf að vera af persónusíðu og síðu með undirskrift umsækjanda.
  5. Staðfest frumrit erlends sakavottorðs. Sakavottorð má ekki vera eldra en 6 mánaða. Leggja þarf fram sakavottorð frá öllum þeim löndum þar sem umsækjandi hefur búið síðustu 5 ár. Sakavottorð skal gefið út af æðsta yfirvaldi lands sem heimilt er að gefa út slíkt vottorð. Athugið að krafist er vottunar sakavottorðs, þ.e. apostille eða tvöfaldrar keðjustimplunar.
  6. Staðfest afrit eða frumrit þýðingar löggilts skjalaþýðanda á sakavottorði. Á aðeins við ef erlend vottorð eru á öðru tungumáli en ensku eða Norðurlandamáli. Athugið að krafist er vottunar á þýðinguna sé hún unnin af þýðanda sem ekki hefur fengið löggildingu á Íslandi, þ.e. apostille eða tvöfaldrar keðjustimplunar.
  7. Sjúkrakostnaðartrygging. Umsækjandi þarf að leggja fram staðfestingu tryggingar frá íslensku tryggingafélagi (undir liðnum vátryggingafélög) eða erlendu tryggingafélagi sem hefur starfsleyfi á Íslandi (undir liðnum erlend vátryggingafélög). Tryggingin skal gilda í 6 mánuði frá skráningu umsækjanda í þjóðskrá og vera að lágmarki 2.000.000 kr. Skráning í þjóðskrá miðast að öllu jöfnu við þá dagsetningu sem umsækjandi kemur til myndatöku hjá Útlendingastofnun eða sýslumanni vegna útgáfu dvalarskírteinis, hafi hann dvalið hér á landi samfellt frá því að myndatakan fór fram.
  8. Umsókn um viðeigandi atvinnuleyfi. Í frumriti, undirrituð bæði af umsækjanda og atvinnurekanda og staðfest af viðeigandi stéttarfélagi.
    1. Umsókn um tímabundið atvinnuleyfi vegna starfs sem krefst sérfræðiþekkingar.
    2. Umsókn um tímabundið atvinnuleyfi vegna skorts á starfsfólki.
    3. Umsókn um tímabundið atvinnuleyfi fyrir íþróttafólk.
    4. Umsókn um tímabundið atvinnuleyfi fyrir sérhæfða starfsmenn á grundvelli samstarfs- eða þjónustusamnings.
  9. Ráðningarsamningur. Í frumriti og undirritaður bæði af umsækjanda og atvinnurekanda. Launakjör umsækjanda þurfa að koma fram og ná viðmiði um lágmarksframfærslu. 

 

Gögn sem heimilt er að leggja fram

  • Umboð í frumriti vottað af tveimur vottum. Umboð þarf ekki að berast nema umsækjandi vilji að einhver annar en hann sjálfur fái upplýsingar um vinnslu umsóknarinnar hjá Útlendingastofnun.

Það er á ábyrgð umsækjanda að leggja fram nauðsynleg fylgigögn umsóknar. Ef fullnægjandi gögn berast ekki til Útlendingastofnunar með umsókninni getur það leitt til þess að afgreiðsla umsóknar tefjist eða að umsókninni verði synjað. Útlendingastofnun getur óskað eftir viðbótargögnum þegar sérstakar ástæður mæla með því

Uppfylli umsækjandi öll skilyrði dvalarleyfis verður dvalarleyfið veitt og umsækjanda í framhaldinu send tilkynning um veitinguna. Dvalarleyfið verður þó ekki útgefið fyrr en umsækjandi hefur mætt í myndatöku til Útlendingastofnunar eða sýslumanna utan höfuðborgarsvæðisins, tilkynnt um dvalarstað til Útlendingastofnunar og gengist undir læknisskoðun. Miðað er við að umsækjandi mæti til myndatöku innan við viku frá komu til landsins, og leggi fram tilkynningu um dvalarstað (t.d. við myndatöku) og gangist undir læknisskoðun innan tveggja vikna frá komu til landsins. Útlendingastofnun synjar um útgáfu dvalarleyfis uppfylli umsækjandi ekki ofantalin skilyrði. Það getur leitt til ólögmætrar dvalar og brottvísunar.

 

Endurnýjun

Heimilt er að endurnýja dvalarleyfi vegna atvinnuþátttöku ef skilyrði þess eru enn uppfyllt. Sækja þarf um endurnýjun dvalarleyfis a.m.k. 4 vikum áður en gildistími leyfis rennur út. Sé það gert er umsækjanda heimilt að dvelja á Íslandi á meðan umsókn um endurnýjun er til vinnslu hjá Útlendingastofnun. Sé ekki sótt um endurnýjun dvalarleyfis áður en gildistími rennur út verður farið með umsókn eins og um fyrsta leyfi sé að ræða en ekki endurnýjun. Umsókn sem berst eftir að gildistími eldra leyfis er útrunninn verður synjað ef umsækjandi hefur ekki heimild til dvalar á landinu á meðan umsókn er til vinnslu.  

Umsókn um dvalarleyfi vegna skorts á starfsfólki sem berst eftir að gildistími eldra dvalarleyfis er útrunninn verður synjað, óháð því hvort umsækjandi megi vera staddur á landinu eða ekki á meðan umsókn er til vinnslu. Ekki er hægt að fá útgefið dvalarleyfi vegna skorts á starfsfólki að nýju fyrr en umsækjandi hefur dvalist erlendis í samfellt 2 ár frá lokum gildistíma leyfisins. Sjá nánar um feril umsókna og heimild til dvalar.

Umsækjandi þarf að mæta í eigin persónu við endurnýjun dvalarleyfis, annað hvort í afgreiðslu Útlendingastofnunar eða til sýslumanna utan höfuðborgarsvæðis. Tekin er mynd af umsækjanda og þarf hann að veita rithandarsýnishorn. Umsækjanda ber að hafa vegabréf sitt meðferðis.

 

Gögn sem þarf að leggja fram

  1. Umsókn um dvalarleyfi. (Vinsamlegast hlaðið niður og vistið á tölvu áður en fyllt er út). Í frumriti, vel útfyllt og undirrituð af umsækjanda.
  2. Ljósrit vegabréfs. Gildistími skal vera minnst 90 dagar umfram gildistíma dvalarleyfis. Ljósrit þarf að vera af persónusíðu og síðu með undirskrift umsækjanda.
  3. Umsókn um viðeigandi atvinnuleyfi. Í frumriti, undirrituð bæði af umsækjanda og atvinnurekanda og staðfest af viðeigandi stéttarfélagi.
    1. Umsókn um tímabundið atvinnuleyfi vegna starfs sem krefst sérfræðiþekkingar.
    2. Umsókn um tímabundið atvinnuleyfi vegna skorts á starfsfólki.
    3. Umsókn um tímabundið atvinnuleyfi fyrir íþróttafólk.
    4. Umsókn um tímabundið atvinnuleyfi fyrir sérhæfða starfsmenn á grundvelli samstarfs- eða þjónustusamnings.
  4. Ráðningarsamningur. Í frumriti og undirritaður bæði af umsækjanda og atvinnurekanda. Launakjör umsækjanda þurfa að koma fram og ná viðmiði um lágmarksframfærslu. 

 

Gögn sem heimilt er að leggja fram

  • Umboð í frumriti vottað af tveimur vottum. Umboð þarf ekki að berast nema umsækjandi vilji að einhver annar en hann sjálfur fái upplýsingar um vinnslu umsóknarinnar hjá Útlendingastofnun.

Það er á ábyrgð umsækjanda að leggja fram nauðsynleg fylgigögn umsóknar. Ef fullnægjandi gögn berast ekki til Útlendingastofnunar með umsókninni getur það leitt til þess að afgreiðsla umsóknar tefjist eða að umsókninni verði synjað. Útlendingastofnun getur óskað eftir viðbótargögnum þegar sérstakar ástæður mæla með því.

 

Sérfræðingur í atvinnuleit

Heimilt er að endurnýja dvalarleyfi vegna starfs sem krefst sérfræðiþekkingar í allt að 3 mánuði frá því að umsækjandi missti starf sitt eða uppsagnarfrestur er liðinn, til að umsækjandi geti leitað sér annars starfs á grundvelli sérfræðiþekkingar sinnar. Það er skilyrði fyrir veitingu dvalarleyfis fyrir sérfræðing í atvinnuleit að umsóknin berist innan gildistíma fyrra dvalarleyfis.

 

Gögn sem þarf að leggja fram

  1. Umsókn um dvalarleyfi. Í frumriti, vel útfyllt og undirrituð af umsækjanda.
  2. Ljósrit vegabréfs. Gildistími skal vera minnst 90 dagar umfram gildistíma dvalarleyfis. Ljósrit þarf að vera af persónusíðu og síðu með undirskrift umsækjanda.
  3. Framfærslugögn frá umsækjanda sem staðfesta að framfærsla hans sé trygg á dvalartíma.

 

Gögn sem heimilt er að leggja fram

  • Umboð í frumriti vottað af tveimur vottum. Umboð þarf ekki að berast nema umsækjandi vilji að einhver annar en hann sjálfur fái upplýsingar um vinnslu umsóknarinnar hjá Útlendingastofnun.

Það er á ábyrgð umsækjanda að leggja fram nauðsynleg fylgigögn umsóknar. Ef fullnægjandi gögn berast ekki til Útlendingastofnunar með umsókninni getur það leitt til þess að afgreiðsla umsóknar tefjist eða að umsókninni verði synjað. Útlendingastofnun getur óskað eftir viðbótargögnum þegar sérstakar ástæður mæla með því.

  • Hverjir þurfa dvalarleyfi?
  • Ferill umsókna
    • Útgáfustaðir D-áritana
  • Afgreiðslutími og umsóknir í vinnslu
  • Langtímavegabréfsáritun
  • Langtímavegabréfsáritun fyrir fólk í fjarvinnu og aðstandendur þess
  • Fjölskyldusameining
  • - Maki eða sambúðarmaki
  • - Barn
  • - Foreldri 67 ára og eldri
  • - Foreldri barns yngra en 18 ára
  • Atvinnuleyfi
    • Flýtimeðferð
  • Nám
    • Endurnýjun og námsárangur
  • Vistráðning / au-pair
  • Vinnudvöl fyrir ungt fólk
  • Sjálfboðaliðar
  • Trúboðar
  • Lögmætur tilgangur
  • Sérstök tengsl við Ísland
  • Ríkisborgarar EES/EFTA og aðstandendur þeirra
    • EES og EFTA ríkin
  • Ótímabundið dvalarleyfi
  • Réttindi
  • Grunnskilyrði
  • Gagnakröfur
    • FBI sakavottorð
  • Heimild til dvalar
  • Synjun umsóknar um dvalarleyfi
  • Afturköllun dvalarleyfis
  • Algengar spurningar
  • Brottvísun og endurkomubann

Tenglar

  • Dómsmálaráðuneytið
  • Kærunefnd útlendingamála
  • New in Iceland
  • Fjölmenningarsetur
  • Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna
  • Mannréttindaskrifstofa
  • Vinnumálastofnun
  • Þjóðskrá
  • Persónuvernd

Upplýsingar

  • Útlendingastofnun
  • Dvalarleyfi
  • Áritanir
  • Ríkisborgararéttur
  • Alþjóðleg vernd

OPNUNARTÍMI

Mánudaga til fimmtudaga 9 - 14
Föstudaga 9 - 12

Sími: 444 0900

Netfang: This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

Staðsetning

Útlendingastofnun | Dalvegi 18 | 201 Kópavogi | 444 0900 | utl@utl.is

Kt. 670269-6399 | Rkn. 0515-26-410424 

Jafnlaunavottun adalmerki 2020 2023 f ljosan grunn hr monitor 2020