Útlendingar, aðrir en ríkisborgarar EES/EFTA ríkja, sem hyggjst dvelja á Íslandi lengur en þrjá mánuði, þurfa að fá útgefið dvalarleyfi hjá Útlendingastofnun.
Ríkisborgari EES/EFTA ríkis þarf ekki dvalarleyfi en verður að skrá sig hjá Þjóðskrá Íslands ef hann hyggst dvelja á Íslandi lengur en þrjá mánuði.
Aðstandandi EES/EFTA borgara, sem er ekki ríkisborgari EES/EFTA ríkis sjálfur, þarf að fá útgefið dvalarskírteini hjá Útlendingastofnun.
Skilyrði dvalarleyfis
Skilyrði fyrir veitingu dvalarleyfis eru tvenns konar:
- grunnskilyrði, sem gilda um öll dvalarleyfi, og
- önnur skilyrði, sem gilda um hverja tegund dvalarleyfis fyrir sig og er að finna í upplýsingum undir hverju leyfi.
Athugið að sérstök skilyrði eru fyrir veitingu ótímabundins dvalarleyfis.
Tegundir dvalarleyfa
Tilgangur umsækjanda með dvöl hér á landi verður að vera í samræmi við það dvalarleyfi sem sótt er um.
Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér vel hvaða skilyrði eru fyrir veitingu þess dvalarleyfis sem sótt er um, hvaða gögn þarf að leggja fram og á hvaða formi. Það flýtir vinnslu umsóknar ef öll gögn eru fullnægjandi í upphafi.