• Íslenska
  • English (UK)

Sidebar

  • Heim
  • Um Útlendingastofnun
    • Útlendingastofnun
    • Fréttir
    • Greinar
    • Tölfræði
      • Tölfræði leyfasviðs
      • Tölfræði verndarsviðs
    • Ársskýrslur
    • Stefnur Útlendingastofnunar
      • Stefna Útlendingastofnunar til ársins 2023
      • Launastefna
      • Jafnlaunastefna
      • Tungumálastefna
      • Persónuverndarstefna
    • Skipurit
    • Gjaldskrá
    • Eyðublöð
    • Afgreiðslutími
    • Samstarfssamningar
    • Lög og reglugerðir
    • Algengar spurningar
      • Dvalarleyfi
      • Alþjóðleg vernd
      • Vegabréfsáritanir
      • Íslenskur ríkisborgararéttur
      • Túlkanir og þýðingar
      • Upplýsingar fyrir ríkisborgara Úkraínu
    • Hafa samband
  • Eyðublöð
  • Afgreiðslutími
  • Tímabókanir
  • Hafa samband
  • Algengar spurningar
  • Tölfræði
    • Tölfræði leyfasviðs
    • Tölfræði verndarsviðs
  1. Heim
  2. Fjölskyldusameining flóttamanna
  3. Alþjóðleg vernd fyrir systkini fylgdarlauss flóttabarns

Alþjóðleg vernd fyrir systkini fylgdarlauss flóttabarns

Systkini fylgdarlauss flóttabarns á Íslandi á rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi með fjölskyldusameiningu ef:

  • fylgdarlausa flóttabarnið fékk viðurkenningu á réttarstöðu sinni sem flóttamaður á Íslandi áður en það varð 18 ára,

  • systkinið sem sækir um fjölskyldusameiningu:
    • er yngra en 18 ára þegar umsókn er lögð fram,
    • er án maka eða sambúðarmaka,
    • býr hjá og er í forsjá foreldris sem einnig sækir um fjölskyldusameiningu.

Forsjáraðili sem ekki er líffræðilegt foreldri barns á ekki rétt á dvalarleyfi fyrir barnið nema forsjáraðili hafi jafnframt ættleitt barnið. Ættleiðingu þarf að vera lokið áður en umsókn er lögð fram og hún þarf að vera gerð í samræmi við íslensk lög. Ef einstaklingur búsettur hér á landi ætlar að ættleiða barn erlendis, þarf forsamþykki sýslumanns fyrir henni, sjá lög um ættleiðingar.

Réttindi

Umsókn

Endurnýjun

Sérskilyrði


RÉTTINDI

  • Dvalarleyfi á grundvelli alþjóðlegrar verndar sem systkini fylgdarlauss flóttabarns er að jafnaði veitt til fjögurra ára í senn og er endurnýjanlegt.
  • Dvalarleyfið getur verið grundvöllur ótímabundins dvalarleyfis.
  • Dvalarleyfinu fylgir heimild til að vinna án atvinnuleyfis.
  • Einstaklingur sem nýtur alþjóðlegrar verndar getur átt rétt á íslenskum ríkisborgararétti eftir fimm ára samfellda búsetu á Íslandi.

UMSÓKN

Umsóknir er aðeins hægt að leggja fram á pappírsformi, annað hvort í þar til gerðan póstkassa í anddyri Útlendingastofnunar að Dalvegi 18 í Kópavogi eða með því að senda umsókn í bréfpósti á sama heimilisfang. Einnig er hægt að leggja inn umsóknir hjá embættum sýslumanna utan höfuðborgarsvæðisins.

Það er á ábyrgð forsjáraðila að leggja fram fullnægjandi gögn með umsókn. Ef fullnægjandi gögn berast ekki með umsókninni getur það leitt til þess að afgreiðsla umsóknar tefjist eða að umsókninni verði synjað.

Gögn sem umsækjendur þurfa að leggja fram: 

  1. Umsókn um dvalarleyfi og alþjóðlega vernd. 
    • Umsókn þarf að vera í frumriti, vel út fyllt og undirrituð af forsjáraðilum (ekki umsækjanda).
  2. Passamynd (35mm x 45mm).
  3. Ljósrit vegabréfs. 
    • Ljósrit þarf að vera af síðum með eftirfarandi upplýsingum: persónuupplýsingum umsækjanda, gildistíma vegabréfs, rithandarsýnishorni, áritunum og komustimpli ef umsækjandi er kominn til landsins. Mikilvægt er að ljósrit sé skýrt, í lit og að allar umbeðnar upplýsingar komi fram á afriti.
    • Athugið að ef umsækjandi er með tvö eða fleiri ríkisföng þarf að skila ljósriti úr öllum vegabréfum umsækjanda.
  4. Fæðingarvottorð.
    • Má leggja fram í lögformlega staðfestu frumriti eða staðfestu afriti af lögformlega staðfestu frumriti.
    • Ef vottorðið er á öðru tungumáli en ensku eða Norðurlandamáli, verður því að fylgja frumrit þýðingar löggilts skjalaþýðanda.
      • Ef þýðandinn hefur ekki fengið löggildingu á Íslandi þarf lögformlega staðfestingu á frumrit þýðingarinnar. 
  5. Gögn sem sýna fram á forsjá barns. Athugið að aðeins forsjárforeldrar geta sótt um dvalarleyfi fyrir barn sitt.
    • Eftirfarandi gögn geta sýnt fram á hver fer með forsjá barns:
      • Forsjárgögn.
        • Skulu gefin út af þar til bæru stjórnvaldi, svo sem sýslumanni eða dómstólum.
        • Skilyrði er að gögnin séu ekki eldri en 6 mánaða.
        • Ef fleiri en einn aðili fer með forsjá barns, þarf einnig að leggja fram frumrit vottaðrar yfirlýsingar þess foreldris sem ekki er búsett á Íslandi um að það samþykki að barnið fái dvalarleyfi á Íslandi.
      • Skilnaðargögn.
        • Ef foreldrar barns eru lögskilin og fram kemur í skilnaðargögnum hver fari með forsjá barns, teljast þau gögn nægileg til staðfestingar á forsjá.
      • Dánarvottorð.
        • Ef annað foreldri barns er látið og eftirlifandi foreldri fer eitt með forsjá þess, telst staðfest afrit dánarvottorðs nægileg staðfesting á forsjá.
    • Ofangreind vottorð eða gögn má leggja fram í lögformlega staðfestu frumriti eða staðfestu afriti af lögformlega staðfestu frumriti.
    • Ef vottorðið er á öðru tungumáli en ensku eða Norðurlandamáli, verður því að fylgja frumrit þýðingar löggilts skjalaþýðanda.
      • Ef þýðandinn hefur ekki fengið löggildingu á Íslandi þarf lögformlega staðfestingu á frumrit þýðingarinnar. 
    • Athugið að yfirlýsing fyrir dómstólum telst ekki fullnægjandi forsjárgagn þótt hún sé útgefin af dómstólum og vottuð af lögbókanda.
  6. Umboð. 
    • Í frumriti og vottað af tveimur vottum.
    • Umboð þarf ekki að berast nema umsækjandi vilji að einhver annar en hann sjálfur fái upplýsingar um vinnslu umsóknarinnar hjá Útlendingastofnun.

Gögn sem börn 15 ára og eldri verða einnig að leggja fram:

  1. Sakavottorð. 
    • Má leggja fram í afriti.
    • Skal gefið út af æðsta yfirvaldi sem heimilt er að gefa út slíkt vottorð í búsetulandi umsækjanda.
    • Má ekki vera eldra en 12 mánaða á umsóknardegi.
    • Ef vottorðið er á öðru tungumáli en ensku eða Norðurlandamáli, verður því að fylgja þýðing löggilts skjalaþýðanda.
      • Ef þýðandinn hefur ekki fengið löggildingu á Íslandi þarf lögformlega staðfestingu á frumrit þýðingarinnar.
  2. Hjúskaparstöðuvottorð, til sönnunar á því að umsækjandi sé ekki í sambúð eða hjúskap. 
    • Má leggja fram í lögformlega staðfestu frumriti eða staðfestu afriti af lögformlega staðfestu frumriti.
    • Má ekki vera eldra en 6 mánaða.
    • Ef vottorðið er á öðru tungumáli en ensku eða Norðurlandamáli, verður því að fylgja frumrit þýðingar löggilts skjalaþýðanda.
      • Ef þýðandinn hefur ekki fengið löggildingu á Íslandi þarf lögformlega staðfestingu á frumrit þýðingarinnar.
  3. Viljayfirlýsing.
    • Umsækjandi þarf að leggja fram vottaða viljayfirlýsingu um að hann vilji búa hjá foreldri/ foreldrum á Íslandi.
    • Viljayfirlýsing verður að vera undirrituð af barni og vottuð af tveimur vottum.

Viðbótargögn sem umsækjandi getur þurft að leggja fram:

  • Sakavottorð.
    • Ef þörf þykir getur Útlendingastofnun óskað eftir að umsækjandi leggir fram sakavottorð í lögformlega staðfestu frumriti eða staðfestu afriti af lögformlega staðfestu frumriti.
    • Vottorðið skal gefið út af æðsta yfirvaldi sem heimilt er að gefa út slíkt vottorð í búsetulandi umsækjanda.
    • Það má ekki vera eldra en 12 mánaða á umsóknardegi.
    • Ef vottorðið er á öðru tungumáli en ensku eða Norðurlandamáli, verður því að fylgja þýðing löggilts skjalaþýðanda.
      • Ef þýðandinn hefur ekki fengið löggildingu á Íslandi þarf lögformlega staðfestingu á frumrit þýðingarinnar.

Uppfylli umsækjandi öll skilyrði dvalarleyfis verður leyfið veitt og umsækjanda í framhaldinu send tilkynning um veitinguna.

Dvalarleyfið verður þó ekki útgefið fyrr en umsækjandi hefur mætt í myndatöku til Útlendingastofnunar eða sýslumanna utan höfuðborgarsvæðisins og gengist undir læknisskoðun. Miðað er við að umsækjandi mæti til myndatöku innan viku frá komu til landsins og gangist undir læknisskoðun innan tveggja vikna frá komu til landsins.

Útlendingastofnun synjar útgáfu dvalarleyfis uppfylli umsækjandi ekki ofan talin skilyrði. Það getur leitt til ólögmætrar dvalar og brottvísunar.

ENDURNÝJUN

Dvalarleyfi á grundvelli alþjóðlegrar verndar sem systkini fylgdarlauss flóttabarns er að jafnaði veitt til fjögurra ára í senn og er endurnýjanlegt ef skilyrði þess eru enn uppfyllt.

Sækja þarf um endurnýjun dvalarleyfis að minnsta kosti fjórum vikum áður en gildistími leyfis rennur út. 

Eftir fjögurra ára dvöl á Íslandi á dvalarleyfi á grundvelli alþjóðlegrar verndar er einnig hægt að sækja um ótímabundið dvalarleyfi.

Gögn sem þarf að leggja fram:

  1. Umsókn um endurnýjun dvalarleyfis. 
    • Umsókn þarf að vera í frumriti, vel útfyllt og undirrituð af forsjáraðila, ef barn er ennþá yngra en 18 ára en annars af umsækjanda sjálfum.
  2. Ljósrit vegabréfs.
    • Ljósrit þarf að vera af síðum með eftirfarandi upplýsingum: persónuupplýsingum umsækjanda, gildistíma vegabréfs, rithandarsýnishorni, áritunum og komustimpli ef umsækjandi er kominn til landsins. Mikilvægt er að ljósrit sé skýrt, í lit og að allar umbeðnar upplýsingar komi fram á afriti.
    • Athugið að ef umsækjandi er með tvö eða fleiri ríkisföng þarf að skila ljósriti úr öllum vegabréfum umsækjanda.

Útlendingastofnun getur óskað eftir viðbótargögnum þegar sérstakar ástæður mæla með því.

SÉRSKILYRÐI

Ferðalag til heimaríkis getur leitt til afturköllunar á vernd

Barn, sem fær alþjóðlega vernd með fjölskyldusameiningu við flóttamann, fær sömu réttindi og skyldur og flóttamaðurinn sem það sameinast hér á landi. Barnið er skilgreint sem flóttamaður samkvæmt íslenskum lögum og alþjóðasamningum og getur því ekki ferðast til heimaríkis/heimaríkja án þess að eiga á hættu að alþjóðleg vernd þess og þar með dvalarleyfi hér á landi verði afturkallað.

Alþjóðleg vernd er veitt á þeirri forsendu að öryggi flóttamanns sé í hættu í heimalandi. Snúi hann þangað aftur gefur það í skyn að ástandið í heimalandi hafi batnað og að flóttamaðurinn þurfi ekki lengur á alþjóðlegri vernd að halda.

  • Alþjóðleg vernd
  • Helstu hugtök og skilgreiningar
  • Ferill umsókna
  • - Hvernig er sótt um?
  • - Meðferð umsókna
  • - Afturköllun umsóknar
  • - Máli lokið með ákvörðun ÚTL
  • Fylgd úr landi eftir synjun
  • Sjálfviljug heimför
  • Réttindi og þjónusta við umsækjendur um alþjóðlega vernd
    • Reglur um gestakomur í búsetuúrræðum Útlendingastofnunar
  • Talsmannaþjónusta
  • Bráðabirgðadvalar- og atvinnuleyfi
  • Listi yfir örugg ríki
  • Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða
  • Fjölskyldusameining flóttamanna
    • Alþjóðleg vernd fyrir maka flóttamanns
    • Alþjóðleg vernd fyrir barn flóttamanns
    • Alþjóðleg vernd fyrir foreldri fylgdarlauss barns
    • Alþjóðleg vernd fyrir systkini fylgdarlauss flóttabarns
  • Vegabréf fyrir útlendinga
  • Ferðaskírteini fyrir flóttamenn
  • Algengar spurningar

Tenglar

  • Dómsmálaráðuneytið
  • Kærunefnd útlendingamála
  • New in Iceland
  • Fjölmenningarsetur
  • Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna
  • Mannréttindaskrifstofa
  • Vinnumálastofnun
  • Þjóðskrá
  • Persónuvernd

Upplýsingar

  • Útlendingastofnun
  • Dvalarleyfi
  • Áritanir
  • Ríkisborgararéttur
  • Alþjóðleg vernd
  • Persónuverndarstefna

OPNUNARTÍMI

Mánudaga til föstudaga 9 - 14

Símaþjónusta:
Mánudaga til fimmtudaga 9 - 14
Föstudaga 9 - 12

444 0900

This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

Staðsetning

Útlendingastofnun | Dalvegi 18 | 201 Kópavogi | 444 0900 | utl@utl.is

Kt. 670269-6399 | Rkn. 0515-26-410424 

Jafnlaunavottun adalmerki 2020 2023 f ljosan grunn hrmonitor 2021