|
Þriðjudagur, 12. júní 2012 14:33 |
|
Vegna sumarleyfa starfsmanna er fyrirséð að hægjast muni á afgreiðslu Útlendingastofnunar yfir sumarmánuðina. Gera má ráð fyrir að það taki stofnunina lengri tíma að svara erindum sem og að afgreiða umsóknir um dvalarleyfi. Viðskiptavinir stofnunarinnar eru fyrirfram beðnir velvirðingar á hugsanlegum óþægindum vegna þessa og jafnframt beðnir um að sýna þolinmæði.
|
|
|
Miðvikudagur, 30. maí 2012 12:07 |
Frá og með 1. júní 2012 getur gestgjafi á Íslandi ábyrgst framfærslu umsækjanda um vegabréfsáritun. Eyðublað sem gestgjafi og umsækjandi þurfa að fylla út og láta fylgja umsókn er á heimasíðu Útlendingastofnunar. |
|
Fimmtudagur, 22. mars 2012 16:12 |
|
Föstudaginn 30. mars nk. verður afgreiðsla Útlendingstofnunar lokuð vegna starfsdags. |
|
Mánudagur, 20. febrúar 2012 12:04 |
|
Ársskýrslur hafa ekki verið gerðar hjá Útlendingastofnun frá árinu 2005. Undirrituð ákvað að byrja á ársskýrslu vegna ársins 2008 og klára einnig ársskýrslu vegna 2009 og 2010. Þegar tími gefst til verður farið í að gera stuttar ársskýrslur vegna áranna 2005-2007. Í ársskýrslunum er að finna ýmsan fróðleik um rekstur stofnunarinnar, eðli hans og áhrifavalda, fjölda útgefinna dvalarleyfa og afgreiddra mála og þá er fróðlegt að sjá hvernig tegundir dvalarleyfa breytast með þjóðfélagsbreytingum, eins og fjarmálakreppunni 2008. Ársskýrslur verða eingöngu aðgengilegar á netinu undir „Ársskýrslur“
Kristín Völundardóttir, forstjóri |
|
Fimmtudagur, 05. janúar 2012 09:08 |
|
Af gefnu tilefni bendir Útlendingastofnun á að fyrirvari sem settur var í „Ákvæði II til bráðabirgða“ í lögum nr. 96/2002 um útlendinga og kveður á um að ríkisborgarar Búlgaríu og Rúmeníu þurfi að afla sér dvalar- og atvinnuleyfis til 1. janúar 2012, er ekki lengur í gildi. Öll ákvæði EES samningsins og útlendingalaga um ríkisborgara EES - og EFTA ríkja gilda því um komu og dvöl ríkisborgara Búlgaríu og Rúmeníu á Íslandi frá og með 1. janúar 2012.
Ríkisborgarar Búlgaríu og Rúmeníu sem þegar hafa fengið dvalar- og atvinnuleyfi og kennitölu því samfara, þurfa ekki að endurnýja þau leyfi, en þeir ríkisborgarar Búlgaríu og Rúmeníu sem eru að koma í fyrsta sinn til Íslands, skrá dvöl sína hjá Þjóðskrá Íslands eins og aðrir ríkisborgarar EES- eða EFTA ríkjanna.
Ríkisborgarar Búlgaríu og Rúmeníu sem eiga umsóknir í vinnslu hjá Útlendingastofnun og/eða Vinnumálastofnun fá ekki útgefin leyfi og ber þeim að skrá dvöl sína hjá Þjóðskrá Íslands.
|
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 Næsta > Síðasta >>
|
|
JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL |