Icelandic(IS)English (United Kingdom)
Leturstærð

Útlendingastofnun, Skógarhlíð 6, 105 Reykjavík. 

Opnunartími:  Alla virka daga frá 10:00 - 14:00

Símatímar:

Dvalarleyfi og vegabréfsáritanir

Mánudaga til fimmtudaga frá kl. 10-12

Lögfræðitengd mál

Þriðjudaga og fimmtudaga frá kl. 10-12

Vinsamlega sendið almennar fyrirspurnir á netfangið: utl@utl.is

 

fms

Fréttir
Svar vegna ummæla um flóttamenn og afdrif þeirra
Þriðjudagur, 22. nóvember 2011 14:53

Svar vegna ummæla um flóttamenn og afdrif þeirra

Síðastliðinn fimmtudag birtist grein eftir Baldur Kristjánsson og Teit Atlason í Fréttatímanum undir yfirskriftinni Flóttamaður – Glæpamaður. Teitur Atlason birti einnig pistil á bloggi sínu á dv.is 19. nóvember s.l. þar sem fjallað var um tilurð þeirrar greinar og lýst eftir afdrifum tiltekinna hælisleitenda hér á landi. Fyrir það fyrsta ber að fagna því að slíkir þungaviktarmenn annars vegar í bloggheimi og hins vegar á vegum Þjóðkirkjunnar skuli sýna málefnum hælisleitenda og flóttamanna slíkan áhuga og það er víst að ekki er vanþörf á að fram fari umræða um þessi málefni sem og í reynd önnur mál er varða innflytjendur á Íslandi.

Nánar...
 
Breyttur opnunartími hjá Útlendingastofnun
Miðvikudagur, 01. september 2010 00:00
Frá 15. september n.k. verður afgreiðsla og sími stofnunarinnar opin alla virka daga frá kl. 10:00 til 14:00. Fyrirspurnum varðandi dvalarleyfi og vegabréfsáritanir sem eru í vinnslu hjá stofnuninni er svarað á símatíma leyfafulltrúa, mánudaga til fimmtudaga frá kl.10:00 til 12:00. Símatími varðandi lögfræðitengd málefni er þriðjudaga og fimmtudaga frá kl. 10:00 til 12:00.
Útlendingastofnun vonast til að þessi breyting verði til þess að hægt verði að stytta málsmeðferðartíma umsókna, auka á hagkvæmni í rekstri stofnunarinnar og stuðla að bættri þjónustu.