|
Almennar upplýsingar:
Búsetuleyfi felur í sér rétt til ótímabundinnar dvalar hér á landi.
Skilyrði þess að fá útgefið búsetuleyfi eru eftirfarandi:
- Umsækjandi hefur dvalið á Íslandi samfellt síðustu fjögur ár samkvæmt dvalarleyfi sem getur verið grundvöllur búsetuleyfis og skilyrði þess leyfis eru enn uppfyllt.
- Hefur sótt námskeið í íslensku fyrir útlendinga.
- Ekki liggja fyrir ástæður sem geta valdið brottvísun.
- Framfærsla hefur verið trygg síðastliðin fjögur ár.
- Umsækjandi á ekki ólokið mál í refsivörslukerfinu þar sem hann er grunaður eða sakaður um refsiverða háttsemi.
Umsækjandi búsetuleyfis skal sækja um leyfið a.m.k fjórum vikum áður en dvalarleyfi hans fellur úr gildi.
Umsækjandi þarf að mæta í myndatöku til Útlendingastofnunar/sýslumanns og hafa vegabréf sitt meðferðis þegar sótt er um búsetuleyfi.
Áætlaður afgreiðslutími umsóknar er 90 dagar eftir að fullnægjandi gögn hafa borist. Afgreiðslutími lengist ef gögn vantar eða ef þau eru ófullnægjandi. (Lesa meira)
- Umsókn um búsetuleyfi í frumriti, útfyllt og undirrituð af umsækjanda.
- Ljósrit úr vegabréfi/ferðaskilríki. Vegabréf skal vera í gildi í a.m.k sex mánuði frá því að umsókn er lögð inn.
- Staðfest afrit af skattframtölum síðustu fjögurra ára frá skattayfirvöldum. Heimilt er að skila skattframtölum á rafrænu formi í tölvupósti til Útlendingastofnunar á netfangið
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
.
- Vottorð um námskeið eða kunnáttu í íslensku, í frumriti, sem sýnir að umsækjandi hafi lokið 150 stundum í íslensku eða tekið stöðupróf í íslensku hjá viðurkenndum skóla.
- Ráðningarsamningur (ef sótt er um óbundið atvinnuleyfi).
- Launaseðlar síðustu þriggja mánaða eða staðfesting á framfærslu.
- Vottorð félagsþjónustu. Umsækjandi þarf að skila inn vottorði frá félagsþjónustu í því sveitarfélagi/sveitarfélögum sem hann hefur búið síðustu fjögur ár. Í vottorðinu þarf að koma fram hvort hann hafi þegið framfærslustyrk.
Ef ekki er sótt um búsetuleyfi a.m.k. mánuði áður en dvalarleyfi fellur úr gildi, ber umsækjanda að fara af landi brott á meðan umsókn er til meðferðar og telst umsókn þá ekki vera um búsetuleyfi heldur sem fyrsta leyfi.
Búsetuleyfi fellur niður þegar útlendingur hefur verið búsettur eða dvalist erlendis lengur en 18 mánuði samfellt.
Sérreglur um búsetuleyfi barns - fylgigögn:
Barn sem fæðist hér á landi eftir að forsjáraðili/aðilar fá útgefið búsetuleyfi getur fengið útgefið búsetuleyfi samkvæmt umsókn. Barn sem fæðist áður en forsjáraðili/aðilar fá útgefið búsetuleyfi þarf að uppfylla almenn tímaskilyrði um búsetuleyfi, þ.e. að hafa dvalið löglega í landinu í fjögur ár.
- Umsókn um búsetuleyfi í frumriti, útfyllt og undirrituð af forsjáraðilum umsækjanda.
- Ljósrit úr vegabréfi/ferðaskilríki. Vegabréf skal vera í gildi í a.m.k sex mánuði frá því að umsókn er lögð inn.
Barn sem fær útgefið búsetuleyfi má vinna án sérstaks atvinnuleyfis til 18 ára aldurs. Eftir þann tíma þarf viðkomandi að sækja um óbundið atvinnuleyfi ef hann ætlar að stunda vinnu.
Umsókn um búsetuleyfi - fylgigögn:
|