Icelandic(IS)English (United Kingdom)
Leturstærð

Útlendingastofnun, Skógarhlíð 6, 105 Reykjavík. 

Opnunartími:  Alla virka daga frá 10:00 - 14:00

Símatímar:

Dvalarleyfi og vegabréfsáritanir

Mánudaga til fimmtudaga frá kl. 10-12

Lögfræðitengd mál

Þriðjudaga og fimmtudaga frá kl. 10-12

Vinsamlega sendið almennar fyrirspurnir á netfangið: utl@utl.is

 

fms

Maki búsetuleyfishafa

Maka er heimilt dvelja á landinu þegar sótt er um dvalarleyfi á grundvelli fjölskyldu­sam­einingar.

Hægt er greiða fyrir fyrstu dvalarleyfisumsókn og senda hana í ábyrgðarpósti til Útlendinga­stofnunar, Skógarhlíð 6, 105 Reykjavík, ásamt greiðslukvittun.  Ef umsækjandi er staddur á landinu skal hann koma til myndatöku um leið og umsókn er lögð inn hjá Útlendingastofnun eða til næsta sýslumannsembættis og hafa vegabréf sitt meðferðis..

Áætlaður afgreiðslutími umsókna er 90 dagar eftir fullnægjandi gögn hafa borist. Ef gögn vantar eða eru ófullnægjandi lengist afgreiðslutíminn.

Dvalarleyfið er jafnaði gefið út til eins árs í senn.

Dvalarleyfið getur verið grundvöllur búsetuleyfis.

 

Fyrsta umsóknfylgigögn

  1. Umsókn um dvalarleyfi, vel útfyllt og undirrituð af umsækjanda, í frumriti.
  2. Ein passamynd (35mm-45mm).
  3. Ljósrit úr vegabréfi. Gildistími vegabréfs skal vera minnst þrír mánuðir umfram gildistíma dvalarleyfis.
  4. Hjúskaparvottorð, í frumriti.
  5. Sakavottorð, frumrit.  Sakavottorð þarf berast frá því ríki/ríkjum sem umsækjandi hefur verið búsettur síðastliðin fimm ár. Sakavottorð ekki vera eldra en 6 mánaða þegar það er lagt inn hjá stofnuninni. Vakin er athygli á því þeir sem hafa verið búsettir í Bandaríkjunum eða Kanada einhvern tímann á undanförnum 5 árum þurfa skila inn sakavottorði með fingrafaraskráningu frá alríkislögreglu í Bandaríkjunum (FBI) og/eða Kanada (RCMP). Hér er finna leiðbeiningar um umsóknarferlið hjá FBI: http://travel.state.gov/travel/tips/emergencies/emergencies_1201.html og RCMD: http://www.rcmp-grc.gc.ca/cr-cj/fing-empr2-eng.htm
  6. Framfærsla.  Umsækjandi þarf sýna fram á fullnægjandi framfærslu.
  7. Vottorð félagsþjónustu.  Maki umsækjanda þarf að skila inn framfærsluvottorði frá viðeigandi félagsþjónustu þar sem fram kemur hvort hann hafi þegið framfærslustyrk eða ekki.
  8. Sjúkrakostnaðartrygging.  Trygging að lágmarki 2.000.000 kr. skal lögð fram frá vátryggingafélagi með starfsleyfi á Íslandi. Sjúkrakostnaðartryggingin þarf að gilda í 6 mánuði.
  9. Umboð.  Umsækjandi getur veitt aðila skriflegt umboð til að sjá um mál hans hjá Útlendingastofnun (ekki skilyrði fyrir afgreiðslu umsóknar).
  10. Húsnæðisvottorð.  Umsækjanda ber að sýna fram á að hann hafi tryggt húsnæði þann tíma sem dvalarleyfisumsókn hans tekur til. Vottorðið þarf að vera undirritað af skráðum húsnæðiseiganda og vottað af tveimur aðilum.
  11. Umsókn um atvinnuleyfi vegna fjölskyldusameiningar, ef umsækjandi hyggst stunda vinnu hér á landi, auk ráðningarsamnings, í frumriti.

Öllum erlendum vottorðum, sem eru á öðrum tungumálum en ensku eða Norðurlandamáli, þarf fylgja frumrit þýðingar sem unnin er af löggiltum skjalaþýðanda.

Ef ástæða þykir áskilur Útlendingastofnun sér rétt til að óska eftir staðfestingu á gildi erlendra vottorða. Um er að ræða annað hvort „apostille” vottun frá heimaríki eða tvöfalda staðfestingu frá utanríkisráðuneyti í heimaríki og sendiráði viðkomandi ríkis hér á landi eða næsta sendiráði (hafi viðkomandi ríki ekki sendiráð hér á landi). Nánari upplýsingar um apostille vottun er að finna á: http://www.hcch.net/index_en.php?act=text.display&tid=37

Eftir að dvalarleyfi hefur verið veitt þarf útlendingur sem er áritunarskyldur að fá D-áritun í næsta sendiráði sem er í fyrirsvari fyrir Ísland og sér um útgáfu þeirra. Í dvalarleyfisumsókn skal tekið fram í hvaða sendiráð útlendingur hyggst sækja D-áritun ef leyfi verður veitt. Lista yfir sendiráð er hægt að nálgast hér.

 

Eftir komu til landsins þarf umsækjandi að:

Að þessum skilyrðum uppfylltum er leyfið gefið út og dvalarleyfiskortið sent á heimilisfang viðkomandi.

Athugið:  Upphaf dvalar miðast við útgáfudag leyfisins.

 

Endurnýjun - fylgigögn:

Sækja þarf um framlengingu a.m.k. mánuði áður en leyfi fellur úr gildi.  Að uppfylltum skilyrðum er dvalarleyfi fyrir maka að jafnaði endurnýjað í eitt ár í senn.

  1. Umsókn um dvalarleyfi, vel útfyllt og undirrituð af umsækjanda, í frumriti.
  2. Ljósrit úr vegabréfi. Gildistími vegabréfs skal vera minnst þrír mánuðir umfram gildistíma dvalarleyfis.
  3. Framfærsla.  Umsækjandi þarf að sýna fram á fullnægjandi framfærslu.
  4. Vottorð félagsþjónustu.  Umsækjandi og maki þurfa að skila inn framfærsluvottorði frá viðeigandi félagsþjónustu þar sem fram kemur hvort viðkomandi aðilar hafi þegið framfærslustyrk eða ekki.
  5. Umboð.  Umsækjandi getur veitt aðila skriflegt umboð til að sjá um mál hans hjá Útlendingastofnun (ekki skilyrði).
  6. Húsnæðisvottorð.  Umsækjanda ber að sýna fram á að hann hafi tryggt húsnæði þann tíma sem dvalarleyfisumsókn hans tekur til. Vottorðið þarf að vera undirritað af skráðum húsnæðiseiganda og vottað af tveimur aðilum.  
  7. Umsókn um atvinnuleyfi vegna fjölskyldusameiningar.  Ef umsækjandi hyggst stunda vinnu hér á landi skal hann leggja inn umsókn um atvinnuleyfi auk ráðningarsamnings, í frumriti.
  8. Yfirlit staðgreiðslu. Umsækjandi þarf að skila inn sundurliðun staðgreiðslu frá skattayfirvöldum vegna síðustu 12 mánaða (ef hann hefur áður fengið útgefið atvinnuleyfi).