Icelandic(IS)English (United Kingdom)
Leturstærð

Útlendingastofnun, Skógarhlíð 6, 105 Reykjavík. 

Opnunartími:  Alla virka daga frá 10:00 - 14:00

Símatímar:

Dvalarleyfi og vegabréfsáritanir

Mánudaga til fimmtudaga frá kl. 10-12

Lögfræðitengd mál

Þriðjudaga og fimmtudaga frá kl. 10-12

Vinsamlega sendið almennar fyrirspurnir á netfangið: utl@utl.is

 

fms

Skortur á vinnuafli

Almennar upplýsingar:

Skilyrði þess útgefið dvalar- og atvinnuleyfi vegna tiltekins starfs sem ekki krefst sérfræðiþekkingar er skortur á vinnuafli hér á landi og vinnuafl fáist ekki innan Evrópska efnahagssvæðisins eða í EFTA-ríkjum.

Leyfi þetta er tímabundið og einungis hægt framlengja einu sinni.

Sækja þarf um dvalarleyfi áður en komið er til Íslands, skv. 1. mgr. 10. gr. laga nr. 96/2002 um útlendinga. Að jafnaði er óheimilt að koma til landsins fyrr en umsókn hefur verið samþykkt.

Hægt er að greiða fyrir fyrstu dvalarleyfisumsókn og senda hana ásamt greiðslukvittun í ábyrgðarpósti til Útlendingastofnunar, Skógarhlíð 6, 105 Reykjavík.

Áætlaður afgreiðslutími umsóknar er 90 dagar eftir að fullnægjandi gögn hafa borist. Afgreiðslutími lengist ef gögn vantar eða ef þau eru ófullnægjandi (lesa meira).

Leyfið veitir ekki rétt til fjölskyldusameiningar og er ekki grundvöllur búsetuleyfis.

 

Fyrsta umsókn - fylgigögn: 

  1. Umsókn um dvalarleyfi í frumriti, útfyllt og undirrituð af umsækjanda.
  2. Umsókn um atvinnuleyfi vegna skorts á vinnuafli í frumriti, útfyllt og undirrituð af umsækjanda og atvinnurekanda.
  3. Ráðningarsamningur í frumriti, útfylltur og undirritaður af umsækjanda og atvinnurekanda.
  4. Passamynd (35mm-45mm).
  5. Ljósrit úr vegabréfi.  Gildistími vegabréfs skal vera minnst 3 mánuðir umfram gildistíma dvalarleyfis.
  6. Sakavottorð, frumrit.  Sakavottorð þarf að berast frá því ríki/ríkjum sem umsækjandi hefur verið búsettur síðastliðin fimm ár. Sakavottorð má ekki vera eldra en 6 mánaða þegar það er lagt inn hjá stofnuninni. Vakin er athygli á því að þeir sem hafa verið búsettir í Bandaríkjunum eða Kanada einhvern tímann á undanförnum 5 árum þurfa að skila inn sakavottorði með fingrafaraskráningu frá alríkislögreglu í Bandaríkjunum (FBI) og/eða Kanada (RCMP). Hér er að finna leiðbeiningar um umsóknarferlið hjá FBI: http://travel.state.gov/travel/tips/emergencies/emergencies_1201.html og RCMD: http://www.rcmp-grc.gc.ca/cr-cj/fing-empr2-eng.htm
  7. Sjúkratrygging.  Leggja skal fram staðfestingu frá tryggingafélagi með starfsleyfi hér á landi um að umsækjandi hafi keypt sjúkratryggingu að lágmarksupphæð kr. 2.000.000 sem gildir fyrstu 6 mánuði af dvöl hans á Íslandi.
  8. Umboð Umsækjandi getur veitt aðstandanda eða öðrum aðila hérlendis umboð til að sjá um mál hans hér á landi (ekki skilyrði fyrir afgreiðslu umsóknar).
  9. Húsnæðisvottorð.  Umsækjanda ber að sýna fram á að hann hafi tryggt húsnæði þann tíma sem dvalarleyfisumsókn hans tekur til. Vottorðið þarf að vera undirritað af eiganda húsnæðisins og vottað af tveimur aðilum.

Öllum erlendum vottorðum, sem eru á öðrum tungumálum en ensku eða Norðurlandamáli, þarf fylgja frumrit þýðingar sem unnin er af löggiltum skjalaþýðanda.

Útlendingastofnun getur óskað eftir staðfestingu á gildi erlendra vottorða. Um er að ræða „apostille” vottun frá heimaríki umsækjanda eða tvöfalda staðfestingu frá utanríkisráðuneyti heimaríkis og sendiráði þess hér á landi eða næsta sendiráði hafi ríkið ekki sendiráð hérlendis. Nánari upplýsingar um apostille vottun er að finna á: http://www.hcch.net/index_en.php?act=text.display&tid=37

Eftir að dvalarleyfi hefur verið veitt þarf útlendingur sem er áritunarskyldur að fá D-áritun í næsta sendiráði sem er í fyrirsvari fyrir Ísland og sér um útgáfu þeirra. Í dvalarleyfisumsókn skal tekið fram í hvaða sendiráð útlendingur hyggst sækja D-áritun. Lista yfir sendiráð er hægt að nálgast hér.

 

Eftir komu til landsins:

Flestir útlendingar þurfa að fara í heilbrigðisskoðun og skila inn læknisvottorði til Útlendingastofnunar (sjá nánar undanþágur og verklagsreglur á heimasíðu Landlæknisembættisins).

Allir útlendingar verða að mæta í myndatöku hjá Útlendingastofnun eða næsta sýslumannsembætti og hafa vegabréf sitt meðferðis.

Dvalarleyfiskort er gefið út og sent á heimilisfang viðkomandi að þessum skilyrðum uppfylltum.

Athugið: Upphaf dvalar miðast við útgáfudag leyfis.

 

Endurnýjun - fylgigögn:

Myndataka: Tekin er mynd af umsækjanda þegar hann sækir um endurnýjun dvalarleyfis og ber honum að hafa vegabréf sitt meðferðis.

Heimilt er að endurnýja leyfi vegna skorts á vinnuafli í allt að eitt ár. Við sérstakar aðstæður er heimilt að endurnýja leyfið til lengri tíma en eins árs ef um er að ræða skýrt afmarkaða og tímabundna verkframkvæmd sem fyrir liggur að taki lengri tíma.

  1. Umsókn um dvalarleyfi í frumriti, útfyllt og undirrituð af umsækjanda.
  2. Umsókn um atvinnuleyfi vegna skorts á vinnuafli í frumriti, útfyllt og undirrituð af umsækjanda og atvinnurekanda.
  3. Ráðningarsamningur í frumriti, útfylltur og undirritaður af umsækjanda og atvinnurekanda.
  4. Ljósrit úr vegabréfi.  Gildistími vegabréfs skal vera minnst þrír mánuðir umfram gildistíma dvalarleyfis.
  5. Húsnæðisvottorð.  Umsækjanda ber að sýna fram á að hann hafi tryggt húsnæði þann tíma sem dvalarleyfisumsókn hans tekur til. Vottorðið þarf að vera undirritað af eiganda húsnæðis og vottað af tveimur aðilum.
  6. Vottorð frá félagsþjónustu.  Umsækjandi þarf að skila inn vottorði frá félagsþjónustu í því sveitarfélagi/sveitarfélögum sem hann hefur búið síðastliðið ár. Í vottorðinu þarf að koma fram hvort hann hafi þegið framfærslustyrk.
  7. Yfirlit staðgreiðslu.  Umsækjandi þarf að skila inn sundurliðun staðgreiðslu frá skattayfirvöldum síðustu 12 mánaða.

Ef ekki er sótt um endurnýjun dvalarleyfis a.m.k. mánuði áður en fyrra leyfi fellur úr gildi, ber umsækjanda að fara af landi brott á meðan umsókn er til meðferðar.