| Til að vinna |
|
Umsókn skal skila inn til Útlendingastofnunar til næsta sýslumannsembættis ásamt viðeigandi fylgigögnum. Útlendingastofnun sendir atvinnuleyfisumsókn og ráðningarsamning til Vinnumálastofnunar sem tekur umsókn til meðferðar. Dvalarleyfi á grundvelli atvinnu skiptist í þrjá flokka:
Dvalarleyfi vegna tímabundins skorts á vinnuafli: Heimilt er að veita útlendingi dvalarleyfi vegna tímabundins skorts á vinnuafli þegar starfsfólk fæst hvorki á innlendum vinnumarkaði né innan evrópska efnahagssvæðisins, í EFTA-ríkjum eða í Færeyjum. Um er að ræða tímabundið leyfi sem hægt er að framlengja til eins árs. Leyfið veitir ekki rétt til fjölskyldusameiningar. Leyfið er ekki grundvöllur búsetuleyfis.
Dvalarleyfi vegna starfs sem krefst sérfræðiþekkingar: Heimilt er að veita útlendingi dvalarleyfi vegna tiltekins starfs hér á landi sem krefst sérfræðiþekkingar ef ekki er um að ræða tímabundið verkefni. Samkvæmt lögum um atvinnuréttindi útlendinga þarf sérfræðiþekking útlendingsins að vera nauðsynleg hlutaðeigandi fyrirtæki og fela í sér háskóla-, iðn-, list- eða tæknimenntun sem er viðurkennd hér á landi. Leyfið veitir rétt til fjölskyldusameiningar. Leyfið er grundvöllur búsetuleyfis.
Heimilt er að veita tímabundið dvalarleyfi vegna starfa íþróttamanna og þjálfara hjá íþróttafélögum innan Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands. Leyfið veitir rétt til fjölskyldusameiningar. Leyfið er ekki grundvöllur búsetuleyfis.
Útlendingur sem kom til landsins fyrir 1. ágúst 2008 og fékk útgefið dvalar- og atvinnuleyfi (B- eða C- leyfi samkvæmt brottföllnu ákvæði 35. gr. reglugerðar nr. 53/2003) getur sótt um endurnýjun á því leyfi hafi hann verið með samfellt dvalarleyfi hérlendis frá komu. Leyfið veitir rétt til fjölskyldusameiningar. Leyfið er grundvöllur búsetuleyfis.
|