| Sambúðarmaki íþróttamanns ITB |
|
Samkvæmt c-lið 2. mgr. 47. gr. reglugerðar nr. 53/2003 um útlendinga telst aðili vera sambúðarmaki, samkvæmt 2. mgr. 13. gr. laga nr. 96/2002 um útlendinga, hafi hann verið í skráðri sambúð eða sambúð sem staðfest er með öðrum hætti í að minnsta kosti tvö ár og hyggst búa áfram með aðstandanda sínum. Sambúðarmaka íþróttamanns - B er heimilt að dvelja á landinu þegar sótt er um dvalarleyfi. Hægt er að greiða fyrir fyrstu dvalarleyfisumsókn og senda hana í ábyrgðarpósti til Útlendingastofnunar, Skógarhlíð 6, 105 Reykjavík, ásamt greiðslukvittun. Ef umsækjandi er staddur á landinu skal hann koma til myndatöku um leið og umsókn er lögð inn hjá Útlendingastofnun eða til næsta sýslumannsembættis og hafa vegabréf sitt meðferðis. Áætlaður afgreiðslutími umsókna er 90 dagar eftir að fullnægjandi gögn hafa borist. Ef gögn vantar eða eru ófullnægjandi lengist afgreiðslutíminn. Sjá nánar hér: Dvalarleyfið er að jafnaði gefið út til eins árs í senn. Dvalarleyfið getur verið grundvöllur búsetuleyfis.
Fyrsta umsókn - fylgigögn: Ef umsækjandi er staddur á landinu er tekin mynd af honum þegar hann sækir um dvalarleyfið og ber honum að hafa vegabréf sitt meðferðis.
Öllum erlendum vottorðum, sem eru á öðrum tungumálum en ensku eða Norðurlandamáli, þarf að fylgja frumrit þýðingar sem unnin er af löggiltum skjalaþýðanda. Ef ástæða þykir áskilur Útlendingastofnun sér rétt til að óska eftir staðfestingu á gildi erlendra vottorða. Um er að ræða annað hvort „apostille” vottun frá heimaríki eða tvöfalda staðfestingu frá utanríkisráðuneyti í heimaríki og sendiráði viðkomandi ríkis hér á landi eða næsta sendiráði (hafi viðkomandi ríki ekki sendiráð hér á landi). Nánari upplýsingar um apostille vottun er að finna á: http://www.hcch.net/index_en.php?act=text.display&tid=37 Eftir að dvalarleyfi hefur verið veitt þarf útlendingur sem er áritunarskyldur að fá D-áritun í næsta sendiráði sem er í fyrirsvari fyrir Ísland og sér um útgáfu þeirra. Í dvalarleyfisumsókn skal tekið fram í hvaða sendiráð útlendingur hyggst sækja D-áritun ef leyfi verður veitt. Lista yfir sendiráð er hægt að nálgast hér.
Eftir komu til landsins þarf umsækjandi að:
Að þessum skilyrðum uppfylltum er leyfið gefið út og dvalarleyfiskortið sent á heimilisfang viðkomandi. Upphaf dvalar miðast við útgáfudag leyfisins
Endurnýjun - fylgigögn: Myndataka: Tekin er mynd af umsækjanda þegar hann sækir um endurnýjun dvalarleyfis og ber honum að hafa vegabréf sitt meðferðis. Sækja þarf um framlengingu a.m.k. mánuði áður en fyrra leyfi fellur úr gildi. Að uppfylltum skilyrðum er dvalarleyfi að jafnaði endurnýjað í eitt ár í senn.
|