Icelandic(IS)English (United Kingdom)
Leturstærð

Útlendingastofnun, Skógarhlíð 6, 105 Reykjavík. 

Opnunartími:  Alla virka daga frá 10:00 - 14:00

Símatímar:

Dvalarleyfi og vegabréfsáritanir

Mánudaga til fimmtudaga frá kl. 10-12

Lögfræðitengd mál

Þriðjudaga og fimmtudaga frá kl. 10-12

Vinsamlega sendið almennar fyrirspurnir á netfangið: utl@utl.is

 

fms

Hverjir þurfa ekki dvalarleyfi

Meginregla laga nr. 96/2002 um útlendinga er að ríkisborgarar ríkja utan EES og EFTA sem ætla að dveljast hér á landi lengur en í 3 mánuði þurfa að hafa dvalarleyfi. Dvöl í öðru ríki sem tekur þátt í Schengen samstarfinu telst jafngilda dvöl hér á landi.

Undanþága frá meginreglunni um dvalarleyfi hér á landi:

Eftirfarandi einstaklingar þurfa ekki dvalarleyfi:       

Norrænir ríkisborgarar, þ.e. danskir, finnskir, norskir og sænskir ríkisborgarar

Útlendingur sem öðlaðist íslenskan ríkisborgararétt við fæðingu en hefur misst hann eða afsalað sér honum

Útlendingur sem á íslenskan ríkisborgara að foreldri ef hann hefur haft fasta búsetu og dvalarleyfi hér á landi samfellt í tvö ár enda hafi foreldrið haft íslenskan ríkisborgararétt ekki skemur en fimm ár

Útlendingur er lögráða og á íslenskan ríkisborgara að foreldri ef hann hefur haft fasta búsetu og dvalarleyfi hér á landi samfleytt í fimm ár

Útlendingur sem á íslenskan maka og hefur búið með honum hér á landi og haft dvalarleyfi samfellt í þrjú ár eftir giftingu eða staðfestingu samvistar

Útlendingur sem býr í skráðri sambúð með íslenskum ríkisborgara og hefur haft fasta búsetu og dvalarleyfi hér á landi samfellt í fimm ár frá skráningu sambúðarinnar enda séu bæði ógift og hinn íslenski ríkisborgari hafi haft ríkisborgararétt ekki skemur en fimm ár