Icelandic(IS)English (United Kingdom)
Leturstærð

Útlendingastofnun, Skógarhlíð 6, 105 Reykjavík. 

Opnunartími:  Alla virka daga frá 10:00 - 14:00

Símatímar:

Dvalarleyfi og vegabréfsáritanir

Mánudaga til fimmtudaga frá kl. 10-12

Lögfræðitengd mál

Þriðjudaga og fimmtudaga frá kl. 10-12

Vinsamlega sendið almennar fyrirspurnir á netfangið: utl@utl.is

 

fms

Þjónusta
Útgáfa vegabréfsáritana hafin í íslenska sendiráðinu í Moskvu
Þriðjudagur, 04. júní 2013 14:45

Útgáfa vegabréfsáritana hófst í dag í sendiráði Íslands í Moskvu. Sjá nánar hér.

 
Afgreiðsla Útlendingastofnunar lokuð 24. maí

Föstudaginn 24. maí nk. verður afgreiðsla Útlendingstofnunar lokuð vegna starfsdags. 

 
Afgreiðsla ríkisborgararéttar verður framvegis hjá Útlendingastofnun
Þriðjudagur, 30. apríl 2013 19:23

 Frá og með næstu mánaðamótum verða málefni er snerta afgreiðslu ríkisborgararéttar vistuð hjá Útlendingastofnun. Þeir sem hyggjast sækja um ríkisborgararétt skulu því framvegis snúa sér til Útlendingastofnunar með fyrirspurnir og umsóknir sínar. Lokaákvörðun verður eftir sem áður tekin í ráðuneytinu.

Fram til þessa hefur innanríkisráðuneytið séð um móttöku og afgreiðslu umsókna um ríkisborgararétt svo og umsóknir um ríkisborgararétt sem fara fyrir Alþingi. Við flutning verkefnisins til Útlendingastofnunar verða til samlegðaráhrif þegar forvinnsla umsókna verður unnin af stofnun sem þegar sér meðal annars um að gefa út dvalar- og búsetuleyfi.

Þessi verkefnaflutningur tengist endurskoðun á verkefnum ráðuneytisins sem fram fór á síðasta ári.

Fyrirspurnum vegna umsókna sem borist hafa ráðuneytinu fyrir 1. maí 2013, ber að beina til ráðuneytisins.

 
Umsóknir og erindi vegna ríkisborgararéttar skulu berast Útlendingastofnun
Þriðjudagur, 30. apríl 2013 09:59

Útlendingastofnun

Skógarhlíð 6
105 Reykjavík
    Sími: 510 5400
    Veffang: www: utl.is
    
Netfang: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Umsóknareyðublöð um íslenskan ríkisborgararétt er finna hér á vef Útlendingastofnunar.

Fyrirspurnum vegna umsókna um íslenskan ríkisborgararétt ber beina til Útlendingastofnunar.

Verkefni innanríkisráðuneytisins samkvæmt ríkisborgaralögum

Innanríkisráðuneytið veitir íslenskan ríkisborgararétt og sér um endanlega afgreiðslu umsókna um ríkisborgararétt. Alþingi getur einnig veitt ríkisborgararétt með lögum. Umsóknir sem fara fyrir Alþingi ber senda til Útlendingastofnunar eins og aðrar umsóknir.

Ráðuneytið sér um stefnumótun í ríkisborgaramálum og tekur þátt í alþjóðlegri samvinnu um ríkisborgararéttarmálefni.

 
Nýr framfærslustuðull frá 1. april 2013
Fimmtudagur, 07. mars 2013 16:29

Frá og með 1.apríl 2013 mun framfærsluviðmið taka gildi hjá Útlendingastofnun. Nánari upplýsingar finna hér:

 
Fréttatilkynning frá Útlendingastofnun vegna fréttar á RÚV 18.01. 2013

 

Vegna fréttar á RÚV í gær þar sem fyrirsögnin var „Sækja til Íslands til frítt fæði og húsnæði og uppihald“ vill undirrituð taka fram orð voru tekin úr samhengi og gefa því ekki rétta mynd af því sem fréttin snérist um.

Það sem reynt var koma á framfæri var gífurleg aukning væri í komum hælisleitenda á s.l. árum og afleiðing þess væri m.a. málsmeðferðartími hjá stofnuninni væri orðinn of langur.

Langur málsmeðferðartími hefur ýmsar óæskilegar afleiðingar í för með sér en þó fyrst og fremst fyrir þá einstaklinga sem sækja um hæli hér á landi og þurfa að bíða allt of lengi eftir að fá niðurstöðu í sín mál með tilheyrandi óvissu. Langur málsmeðferðartími getur því miður einnig haft það í för með sér að einhverjir einstaklingar reyni að misnota þá aðstoð sem stendur hælisleitendum til boða og eru stofnuninni vel kunnar slíkar aðstæður sem skapast hafa hjá nágrannaríkjum okkar.

Að reynslu nágrannaríkjanna hefur það sýnt sig að besta leiðin til að koma í veg fyrir misnotkun á kerfinu er að málsmeðferð sé skjótvirk og sanngjörn.

Á síðustu vikum hefur nokkur hópur einstaklinga sótt um hæli hér á landi sem gæti fallið í hóp þeirra sem stundum er kallað „asylum tourism“. Þessir hópar eru oftar en ekki frá ríkjum sem þurfa ekki vegabréfsáritun til að koma hingað til lands eða annarra Evrópuríkja og koma því oftast með löglegum hætti sem ferðamenn. Þá er algengt að einstaklingar úr þessum hópi beri ekki fyrir sig ofsóknir sem ástæðu flótta heldur efnahagslegar ástæður en það er skýrt samkvæmt flóttamannasamningi Sameinuðu þjóðanna að einstaklingar sem sækja um hæli vegna efnahagslegra ástæðna falla ekki undir samninginn. Þrátt fyrir það á þessi hópur rétt á vandaðri málsmeðferð með tilheyrandi álagi á málsmeðferðar- og móttökukerfi sem aftur getur aukið á biðtíma þeirra sem sárlega þurfa á vernd að halda.

 

Kristín Völundardóttir, forstjóri Útlendingastofnunar

 
Opnunartími Útlendingastofnunar yfir hátíðarnar

Hefðbundinn opnunartími verður 27.- 28. desember en lokað er á aðfangadag og gamlársdag

 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 Næsta > Síðasta >>

JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL