• Íslenska
  • English (UK)

Sidebar

  • Heim
  • Um Útlendingastofnun
    • Útlendingastofnun
    • Skipurit
    • Fréttir
    • Greinar
    • Tölfræði
      • Tölfræði leyfasviðs
      • Tölfræði verndarsviðs
    • Ársskýrslur
    • Gjaldskrá
    • Eyðublöð
    • Afgreiðslutími
    • Samstarfssamningar
    • Lög og reglugerðir
    • Algengar spurningar
    • Hafa samband
  • Eyðublöð
  • Afgreiðslutími
  • Algengar spurningar
  • Hafa samband
  • Lög og reglugerðir
  • Tölfræði
    • Tölfræði leyfasviðs
    • Tölfræði verndarsviðs
  1. Heim
  2. Um Útlendingastofnun
  3. Fréttir

Bætt þjónusta við móttöku umsókna

Details
11 Des. 2019

Frá og með þessari viku verða umsóknir um dvalarleyfi, sem lagðar eru inn í afgreiðslu Útlendingastofnunar, yfirfarnar strax með tilliti til þess hvort öll nauðsynleg gögn fylgi umsókninni.

Tilgangurinn með þessu nýja verklagi er að bæta þjónustu við umsækjendur og auka skilvirkni við afgreiðslu umsókna

Ef gögn vantar, fá umsækjendur upplýsingar um hvaða gögn það eru og leiðbeiningar um að leggja umsóknina inn þegar gagnanna hefur verið aflað. Kjósi umsækjendur að leggja inn og greiða fyrir umsókn þrátt fyrir að fylgigögn vanti, fá þeir skriflegar leiðbeiningar um hvaða gögn það eru sem vantar og 14 daga frest til þess að skila þeim inn. Berist umbeðin gögn ekki innan frestsins verður tekin afstaða til umsóknar á grundvelli fyrirliggjandi gagna

Vinsamlegast athugið að við móttöku umsóknar verður aðeins kannað hvort nauðsynleg gögn séu til staðar en ekki metið hvort gögnin teljist fullnægjandi.

Mikilvægt er að umsækjendur kynni sér gagnakröfur á heimasíðu Útlendingastofnunar. Við vinnslu umsóknar getur Útlendingastofnun enn fremur óskað eftir viðbótargögnum ef þurfa þykir.

Það er von starfsfólks á leyfasviði að nýja verklagið mælist vel fyrir og stuðli að styttingu afgreiðslutíma umsókna um dvalarleyfi.

Opnunartími yfir jól og áramót

Details
09 Des. 2019

23. desember – 09:00 - 14:00
24. desember – Lokað
25. desember – Lokað
26. desember – Lokað
27. desember – 09:00 - 12:00

30. desember – 09:00 - 14:00
31. desember – Lokað
1. janúar – Lokað


Almennur opnunartími verður frá og með 2. janúar.

Styttur opnunartími 13. desember

Details
09 Des. 2019

Útlendingastofnun lokar klukkan 11:00 föstudaginn 13. desember vegna starfsmannafundar.

Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.

Tímabundin takmörkun á útgáfu dvalarleyfiskorta

Details
06 Des. 2019

Útlendingastofnun þarf að takmarka útgáfu dvalarleyfiskorta næstu vikurnar vegna þess að lítið er eftir af kortabirgðum stofnunarinnar. Ný tegund dvalarleyfiskorta verður tekin í notkun fyrri hluta næsta árs.

Vinsamlegast athugið að takmarkanir á útgáfu dvalarleyfiskorta hafa ekki áhrif á afgreiðslu og útgáfu dvalarleyfa.

Til þess að nýta sem best þau kort sem eftir eru mun stofnunin grípa til eftirfarandi ráðstafana þangað til nýju kortin verða tekin í notkun:

  • Ekki verða gefin út dvalarleyfiskort til þeirra sem fá útgefið dvalarleyfi skemur en í 6 mánuði.
  • Ekki verða gefin út ný dvalarleyfiskort þegar einstaklingar skipta um dvalarleyfisgrundvöll, ef þeir eiga kort í gildi.
  • Ekki verða gefin út ný dvalarleyfiskort til einstaklinga með ótímabundin dvalarleyfi.
  • Ekki verða gefin út dvalarleyfiskort vegna glataðra korta.

Einstaklingar sem ekki fá útgefin dvalarleyfiskort við veitingu dvalarleyfis vegna þessara ráðstafana munu fá senda staðfestingu á því að leyfi hafi verið útgefið og til hve langs tíma en að ekki verði gefið út kort.

Þurfi einstaklingar sem ekki hafa fengið dvalarleyfiskort að ferðast til útlanda geta þeir fengið útgefin ný dvalarleyfiskort, ef þeir framvísa ferðagögnum t.d. flugmiða.

Útlendingastofnun biðst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda og bendir þeim sem hafa frekari spurningar á að hafa samband við stofnunina gegnum This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. .

Tillit tekið til sérstakra aðstæðna

Details
04 Des. 2019

Útlendingastofnun vill koma því á framfæri að ávallt er beitt vægustu meðulum sem í boði eru við framfylgd útlendingalaga. Fólki sem hefur ekki komið löglega til landsins eða fengið synjun um leyfi til að dvelja hér á landi er nær alltaf gefinn sá kostur að yfirgefa landið af sjálfsdáðum. Þegar mál hafa fengið endanlega meðferð hjá stjórnvöldum og allar aðstæður leyfa er ekki hægt að gera annað en að vísa úr landi, annað hvort með frávísun eða brottvísun.

Fram kom í fjölmiðlum í gær að fólki frá Georgíu, sem dvalið hefur á Íslandi frá því síðasta haust, verði nú vísað aftur til heimalandsins, en meðferð máls þeirra hér á landi hlaut þá niðurstöðu að þau uppfylli ekki skilyrði um alþjóðlega vernd, samkvæmt þeim alþjóðasamningum sem um hana gilda.

Um er að ræða par og tæplega ársgamalt barn þeirra. Parinu var synjað um alþjóðlega vernd hér á landi öðru sinni þann 26. nóvember í fyrra. Fjórum mánuðum áður hafði þeim verið fylgt til heimalandsins með aðstoð stoðdeildar ríkislögreglustjóra í kjölfar synjunar fyrri umsóknar þeirra um alþjóðlega vernd.

Flutningur fólksins nú er skipulagður með aðkomu fagaðila bæði hér á landi og í Evrópu. Með í för er eftirlitsaðili á vegum Mannréttindaskrifstofu Íslands og einnig fulltrúi barnaverndar. Tekið skal fram vegna fréttaflutnings að farið er að lögum varðandi brottvísun parsins og barns þeirra.

Útlendingastofnun vill taka skýrt fram að tekið var tillit til sérstakra aðstæðna fjölskyldunnar við málsmeðferðina en eins og parið hefur sjálft greint frá í fjölmiðlum misstu þau barn á meðgöngu þegar þau dvöldu hér á landi í fyrra sinnið og vilja geta heimsótt leiði þess hér á landi. Til þess að þau gætu komið hingað löglega síðar í þeim tilgangi var tekin ákvörðun um að brottvísa þeim ekki heldur frávísa. Munurinn á frávísun og brottvísun er sá að brottvísun, sem er framkvæmd af lögreglu, felur í sér endurkomubann inn á Schengen-svæðið en með frávísun er veittur frestur til sjálfviljugrar heimfarar og geta einstaklingar sem hefur verið frávísað komið aftur til landsins og dvalið hér til lengri eða skemmri tíma, svo lengi sem þeir fylgi hefðbundnum skilyrðum sem allir sem hingað koma þurfa að hlíta.

Parinu var nokkrum sinnum gerð grein fyrir afleiðingum þess að yfirgefa landið ekki sjálfviljug innan tilskilins frests, jafnt skriflega sem munnlega. Heimilt er að brottvísa einstaklingum sem ekki fara sjálfviljugir úr landi í kjölfar frávísunar og því miður er það lokaúrræðið í svona málum.

Tekið skal fram í ljósi aðstæðna og þess að hinsti hvíldarstaður barns parsins er hér á landi að fella má úr gildi endurkomubann, hafi aðstæður breyst frá því að ákvörðun um brottvísun var tekin. Þá er einnig heimilt þegar sérstaklega stendur á að heimila þeim sem vísað hefur verið brott að heimsækja landið án þess þó að endurkomubann falli úr gildi.


Bakgrunnur – Georgía og alþjóðleg vernd

Flóttamanna- og verndarkerfið er neyðarkerfi, ætlað fólki sem óttast um líf sitt og frelsi. Til þess að eiga rétt á alþjóðlegri vernd, því að teljast flóttafólk og eiga rétt á alþjóðlegri vernd að lögum og samkvæmt alþjóðasáttmálum, þarf fólk að vera í einhvers konar hættu og eiga ekki möguleika á viðunandi vernd og úrræðum í heimalandi sínu. Þetta leiðir bæði af flóttamannasamningi Sameinuðu þjóðanna og íslenskum lögum sem sett eru á grundvelli hans.

Fyrirliggjandi upplýsingar og mannréttindaskýrslur eru samhljóða um að Georgía sé friðsælt lýðræðisríki þar sem hvorki er stríðsástand né ógnarstjórn. Mannréttindi eru almennt virt og georgísk yfirvöld eru fær um að vernda borgara sína og veita þeim aðstoð. Af þessum sökum er fátítt að georgískum ríkisborgurum sé veitt vernd í Evrópu. Hér á landi hefur umsóknum flestra georgískra ríkisborgara verið synjað í kjölfar skoðunar á aðstæðum einstaklinganna og almennum aðstæðum í Georgíu, en landið er á lista yfir þau ríki sem almennt eru talin örugg. Hvert mál er skoðað sérstaklega og metið á grundvelli atvika þess og séu þær aðstæður uppi að georgískur ríkisborgari sé í hættu í heimalandi sínu og eigi ekki möguleika á vernd þar er honum eða henni veitt alþjóðleg vernd hér á landi eins og lög og alþjóðasáttmálar mæla fyrir um.

Einstaklingar frá Georgíu, sem ekki þurfa á vernd að halda, þurfa dvalarleyfi hér á landi til að mega dvelja hér lengur en þrjá mánuði, eins og ríkisborgarar annarra ríkja utan EES/EFTA-svæðisins. Dvalarleyfi eru meðal annars veitt á grundvelli atvinnuþátttöku, náms og fjölskyldusameiningar og þarf að uppfylla skilyrði slíkra leyfa til að þau séu gefin út.

Fleiri greinar...

  1. Vegna umfjöllunar um flutning barnshafandi konu til Albaníu
  2. 216 fengið vernd það sem af er ári
  3. Skráning í íslenskupróf á haustönn 2019
  4. Opnun seinkar þriðjudaginn 10. september
Síða 1 af 33
  • Fyrsta
  • Fyrri
  • 1
  • 2
  • 3
  • 4
  • 5
  • 6
  • 7
  • 8
  • 9
  • 10
  • Næsta
  • Síðasta
  • Útlendingastofnun
  • Skipurit
  • Fréttir
  • Greinar
  • Tölfræði
    • Tölfræði leyfasviðs
    • Tölfræði verndarsviðs
  • Ársskýrslur
  • Gjaldskrá
  • Eyðublöð
  • Afgreiðslutími
  • Samstarfssamningar
  • Lög og reglugerðir
  • Algengar spurningar
  • Hafa samband

Tenglar

  • Dómsmálaráðuneytið
  • Kærunefnd útlendingamála
  • Rauði krossinn
  • Fjölmenningarsetur
  • Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna
  • Mannréttindaskrifstofa
  • Vinnumálastofnun
  • Þjóðskrá
  • Persónuvernd

Upplýsingar

  • Útlendingastofnun
  • Dvalarleyfi
  • Áritanir
  • Ríkisborgararéttur
  • Alþjóðleg vernd

OPNUNARTÍMI

Mánudaga til fimmtudaga 9 - 14
Föstudaga 9 - 12

Sími: 444 0900

Netfang: This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

Staðsetning

Útlendingastofnun | Dalvegi 18 | 201 Kópavogi | Sími: 444 0900 | Netfang: utl@utl.is